

Hótelstjóri - Hótel Kea
Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf hótelstjóra á Hótel Kea á Akureyri. Starfið felur í sér umsjón með daglegum rekstri hótelsins ásamt ábyrgð á þjónustu og gæðum á einu þekktasta hóteli Akureyrar.
Hótel Kea er glæsilegt hótel í rekstri Keahótela ehf. og er eitt af kennileitum höfuðstaðar Norðurlands, í hjarta Akureyrar. Vel staðsett og samtvinnað sögu síðustu áratuga skapar það fullkomið heimili fyrir ferðalanga á Norðurlandi. Hótelið þekkt fyrir gæði og framúrskarandi þjónustu þar sem upplifun gesta er höfð í fyrirrúmi.
Hótelið er með 104 herbergi þar á meðal lúxusherbergi og stór svíta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegum rekstri hótelsins
- Eftirlit með þjónustu og gæðastjórnun
- Umsjón með starfsmannamálum, mannaflaþörf og þjálfun starfsmanna
- Viðhalda góðum starfsanda
- Ná settum markmiðum í rekstri hótelsins
- Rekstur og viðhald fasteignar í samstarfi við húseiganda
- Náið samstarf við sölu- og markaðsdeild
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Starfsreynsla á sviði stjórnunar og reksturs
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og mikil þjónustulund
- Fjármálalæsi og greiningarhæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra starfsmenn til árangurs
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Keahótel rekur tíu hótel sem eru Hótel Borg, Sand Hótel, Apótek Hótel, Skuggi Hótel, Storm Hótel og Reykjavík Lights í Reykjavík, Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði, Hótel Grímsborgir og Hótel Kötlu í Vík í Mýrdal.
Keahótel er spennandi vinnustaður þar sem starfar samheldinn hópur með fjölbreyttan bakgrunn. Við leggjum áherslu á gott viðmót, þjónustulund, metnað, hæfni, og frumkvæði með það að leiðarljósi að skapa eftirsóknarvert og skilvirkt vinnuumhverfi og ánægða viðskiptavini.
Sjá nánar um Hótel Kea hér
Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 1. maí
Íslenska
Enska










