

Forstöðumaður Amtsbóka- og Héraðsskjalasafnsins á Akureyri
Vilt þú leiða eitt mikilvægasta menningar- og þekkingarsafn landsins inn í framtíðina?
Akureyrarbær leitar að öflugum og framsýnum forstöðumanni Amtsbóka- og Héraðsskjalasafnsins á Akureyri. Þetta er lykilstarf fyrir metnaðarfullan leiðtoga sem vill hafa raunveruleg áhrif á miðlun þekkingar, varðveislu menningararfs og þróun nútímalegrar þjónustu fyrir samfélagið.
Um er að ræða 100% starf sem er ótímabundið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, annars samkvæmt samkomulagi.
Amtsbókasafnið gegnir einstöku hlutverki í íslensku menningarlífi, meðal annars sem viðtakandi skylduskila og starfar í nánu samspili við Héraðsskjalasafnið á Akureyri.
Forstöðumaður ber ábyrgð á stefnumótun, rekstri og daglegri stjórnun Amtsbókasafnsins og Héraðsskjalasafnsins í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu Akureyrarbæjar. Starfið er bæði faglegt og stjórnunarlegt og krefst góðrar yfirsýnar, frumkvæðis og hæfni í mannauðsmálum og rekstri.
Forstöðumaður heyrir undir sviðsstjóra þjónustu- og menningarsviðs og leiðir fjölbreyttan hóp starfsfólks í lifandi og síbreytilegu starfsumhverfi.
Helstu verkefni:
- Mótun framtíðarsýnar og stefnu safnanna og eftirfylgni með henni
- Rekstur og gerð starfs- og fjárhagsáætlana
- Mannauðsstjórnun og fagleg forysta starfsfólks
- Tryggja faglega, aðgengilega og nútímalega þjónustu við bæjarbúa og gesti
- Varðveisla og miðlun menningararfs samkvæmt lögum og reglum
- Frumkvæði að nýjungum og þróun í starfsemi safnanna
- Samstarf við innlenda og erlenda aðila á sviði bóka- og skjalasafna
Við leitum að einstaklingi sem sameinar faglega þekkingu, stjórnunarhæfni og skýra framtíðarsýn.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (BS/BA)
- Háskólapróf á framhaldsstigi (MA/MS) eða sambærilegt sem nýtist í starfi
- Haldbær starfsreynsla á sviði bóka- og/eða skjalasafna
- Þekking á lögum og reglum sem varða starfsemi safna og stjórnsýslu
- Reynsla og/eða hæfni í stjórnun, skipulagi og rekstri
- Góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Góð tölvukunnátta
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði
- Teymishugsun, samstarfsvilji, lipurð og framúrskarandi hæfni í samskiptum
- Skipulagshæfni, sveigjanleiki og víðsýni
- Áhugi á menningu, þekkingarmiðlun og samfélagsþróun
- Metnaður til að ná árangri í starfi
- Gerð er krafa um vammleysi, svo sem að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska
Enska










