
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í íbúðakjarna í Klettatúni á Akureyri
Íbúðakjarninn í Klettatúni 2 óskar eftir að ráða starfsmann með háskólamenntun (BS, BA, B.Ed) sem nýtist í starfi í þjónustu við íbúa. Um er að ræða ótímabundið 100% starf í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun maí eða skv. samkomulagi.
Unnið er eftir hugmyndafræði valdeflingar og Þjónandi leiðsagnar eða annarri hugmyndafræði sem mætir þörfum notenda og ákveðin er af velferðarsviði.
Velferðarsvið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk. Lögð er áhersla á að efla og styðja notendur þjónustunnar til sjálfsbjargar og sjálfstæðis. Starfsfólk sinnir ólíkum einstaklingum í fjölbreyttu og skemmtilegu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veitir faglega ráðgjöf og stuðning við íbúa og starfsfólk.
- Tekur þátt í faglegri uppbyggingu og skipulagningu á einstaklingsmiðaðri þjónustu í samstarfi við forstöðumann.
- Samskipti við ýmsa þjónustuaðila og aðstandendur.
- Tekur þátt í gerð þjónustuáætlana og dagsskipulags innan hverrar einingar fyrir sig.
- Vinnur náið með forstöðumanni og deildarstjórum og er leiðbeinandi við starfsfólk um fagleg vinnubrögð á starfsvettvangi.
- Tekur þátt í mótun starfseminnar.
- Aðstoðar við athafnir daglegs lífs.
- Tekur þátt í öllum almennum heimilisstörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun (BS, BA, B.Ed ) sem nýtist í starfi, s.s. á félags-, heilbrigðis- eða uppeldissviði.
- Þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun er kostur.
- Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.
- Reynsla af teymisvinnu er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bílpróf.
- Þekking á málefnum notendahópsins, þ.e. fötluðum og þeirri þjónustu sem þeim stendur til boða.
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði, samvinnuhæfni og vera tilbúinn að vinna með hópi fólks.
- Góð samskiptafærni.
- Gott líkamlegt atgervi.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Klettatún 2, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiLíkamlegt hreystiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn: starfsmaður í leikskóla
Akureyri

Deildarstjóri í Leikskólann Lundarsel-Pálmholt
Akureyri

Glerárskóli: Deildarstjóri stoðþjónustu
Akureyri

Mannauðsdeild Akureyrarbæjar: Mannauðsráðgjafi
Akureyri

Tækjamaður á Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar
Akureyri

Skipulagssvið Akureyrarbæjar: Verkefnastjóri skipulagsmála
Akureyri
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í Hamrahlíð Vinna og Virkni
Hamrahlíð Vinna og Virkni

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Starfsmaður í skammtímadvöl – Heiðarholt
Suðurnesjabær

Aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Mýrarhúsaskóli auglýsir þrjár stöður.
Seltjarnarnesbær

Aðstoð á iðjuþjálfunardeild
Reykjalundur

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 31 október
NPA miðstöðin

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður óskast í afleysingu í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær