Tækniskólinn
Tækniskólinn
Tækniskólinn

Skjalastjóri

Tækniskólinn leitar að einstaklingi með góða þekkingu og reynslu af skjalastjórnun til að leiða umsjón og þróun upplýsinga- og skjalastjórnar hjá Tækniskólanum.

Skjalastjóri starfar í náinni samvinnu við stjórnendur og starfsfólk þvert á starfssvið stofnunarinnar. Í starfinu felst vinna að innleiðingu nýrra lausna og verklags ásamt handleiðslu samstarfsfólks með skilvirkni að leiðarljósi. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem reynir á öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og fagmennsku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegri umsjón rafræns skjalastjórnunarkerfis Tækniskólans 

  • Ábyrgð á skjalamálum Tækniskólans, mótun verklags og þróun upplýsinga- og skjalastefnu til framtíðar 

  • Leiða þróun og umbætur á sviði skjalamála 

  • Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla til starfsfólks um kerfisnotkun, skjalavistun og bætt verkag 

  • Frágangur og skil á gögnum Tækniskólans til Þjóðskjalasafns Íslands 

  • Stuðla að bestu starfsvenjum í skjalastjórnun og eiga frumkvæði í þróun og innleiðingu nýjunga á verklagi við stafræna þróun upplýsinga- og skjalamála 

  • Sinna hlutverki persónuverndarfulltrúa Tækniskólans; sinna innra eftirliti, upplýsa og ráðleggja vegna persónuverndarlöggjafarinnar, veita ráðgjöf við framkvæmd mats á áhrifum á persónuvernd og vera tengiliður við einstaklinga og Persónuvernd 

  • Þátttaka í starfrækslu gæðakerfis skólans og umbótum gæðakerfisins 

  • Framkvæmd innri úttekta og úrvinnsla þeirra 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf (BA/BS að lágmarki) sem nýtist í starfi er skilyrði, framhaldsnám í upplýsingafræði er kostur  

  • Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfum, gæðastjórnun og innri úttektum  

  • Þekking og reynsla af stafrænu umbreytingarferli og þróun í upplýsinga- og skjalamálum  

  • Þekking og reynsla af skjalastjórnun innan opinberrar stjórnsýslu og meðferð stjórnsýslumála  

  • Þekking á lögum um persónuvernd- og vinnslu persónuupplýsinga  

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti  

  • Mjög góð almenn tölvukunnátta og þekking á Microsoft 365 umhverfinu  

  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum ásamt færni til að leiða umbætur 
  • Góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund. 

  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt31. mars 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Frakkastígur 27, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Bókasafns- og upplýsingafræðingurPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar