Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands

Framkvæmdastjóri - Fjármál og eftirlit

Sjúkratryggingar leita að öflugum og árangursdrifnum stjórnanda með sterka leiðtogahæfni.

Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og jafnt aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það að leiðarljósi að vernda heilbrigði.

Sjúkratryggingar miðla með samningum og greiðslukerfum miklum meirihluta þess fjármagns sem rennur til íslenskrar heilbrigðisþjónustu, um 300 milljarða kr. á ári. Hagkvæm og góð nýting þessara fjármuna er einn lykilþáttur í að tryggja árangur heilbrigðisþjónustunnar.

Framkvæmdastjóri verður hluti af stjórnendateymi Sjúkratrygginga og á sæti í fimm manna framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir forstjóra og ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun ásamt daglegri stjórnun.

Miklar breytingar standa nú yfir hjá Sjúkratryggingum sem ætlað er að efla starfsemina til að bæta árangur og gæði. Ef þú býrð yfir metnaði til að leiða og móta mikilvæga starfsemi innan íslenska heilbrigðiskerfisins í gagnadrifnu, umbótamiðuðu og lifandi umhverfi hvetjum við þig til að sækja um.

Framkvæmdastjóri fjármála og eftirlits annast lykilverkefni á sviði fjármálastjórnunar, innra og ytra eftirlits, áhættustýringar og stuðnings við stefnumótun og ákvarðanatöku. Starfið felur í sér einstakt tækifæri til að móta mikilvægan þátt í starfsemi Sjúkratrygginga og stuðla að markvissri nýtingu opinbers fjár í heilbrigðiskerfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á fjármálum og reikningshaldi sjúkratrygginga með það að markmiði að tryggja góða nýtingu þeirra 300 milljarða sem stofnunin ber ábyrgð á 
  • Áætlanagerð fjárlagaliða sjúkratrygginga og reglubundin uppgjör ásamt frávikagreiningu og eftirfylgni gagnvart frávikum frá áætlun
  • Greining og miðlun fjármálaupplýsinga til stuðnings stefnumótunar og ákvarðanatöku 
  • Yfirsýn yfir alla greiðsluferla sjúkratrygginga og ráðstafanir til að auka hagkvæmni og öryggi þeirra
  • Uppbygging og efling áhættustýringar í samstarfi við áhættustjóra
  • Stefnumótun og þróun innra- og ytra eftirlits stofnunarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistaragráða er kostur 
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti, frumkvæði, umbótamiðaðri hugsun og farsælli stjórnunarreynslu
  • Umfangsmikil reynsla af fjármálastjórnun í krefjandi umhverfi
  • Farsæl reynsla af stefnumótun, breytingastjórnun, stafrænni umbreytingu fjármála og uppbyggingu liðsheildar
  • Framúrskarandi greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og geta til að miðla flóknum upplýsingum á íslensku og ensku í ræðu og á riti
  • Þekking og reynsla af uppbyggingu og þróun eftirlitskerfa er kostur
  • Þekking og reynsla af opinberum fjármálum og stjórnsýslu er kostur
Auglýsing birt21. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar