
Framkvæmdastjóri
Við leitum að framsýnum framkvæmdastjóra til að leiða Greiðslumiðlun Íslands inn í nýtt vaxtarskeið sem hluti af Ásum, vaxandi samstæðu stafrænna þjónustufyrirtækja. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri, stefnumótun og uppbyggingu félagsins, í nánu samstarfi við stjórn og móðurfélagið Ása.
Framundan eru spennandi tækifæri til áframhaldandi vaxtar og þróunar þar sem áhersla verður lögð á tækni, nýsköpun og markvissa nýtingu gervigreindar. Framkvæmdastjóri leiðir öflugt og reynslumikið stjórnendateymi og gegnir lykilhlutverki í að móta sameiginlega framtíðarsýn, setja skýrar áherslur og tryggja árangursríka framkvæmd stefnunnar til að styðja við arðbæran vöxt félagsins. Framkvæmdastjóri er jafnframt andlit félagsins út á við og vinnur náið með stjórnendum systurfélaga innan Ása að sameiginlegum tækifærum.
- Reynsla af stjórnun og rekstri í tæknidrifnu umhverfi
- Reynsla af árangursríkri stefnumótun og umbreytingum
- Þekking á greiðslumiðlun, útlánastarfsemi eða annarri fjártæknistarfsemi er mikill kostur
- Reynsla af kaupum og samþættingu fyrirtækja er æskileg
- Reynsla af því að leiða stjórnendateymi og byggja upp sterka liðsheild
- Leiðtogahæfni, drifkraftur og lipurð í samskiptum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Íslenska
Enska










