
Verkefnastjóri / Project Manager
Litið fjárfestingafélag óskar eftir því að ráða verkefnastjóra til að styðja framkvæmdastjóra við fjölbreytt verkefni á hraðskreiðum vinnustað. Hentar vel fyrir nema.
Hlutverkið felur í sér daglegt skipulag, samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila, verkefnastjórnun og eftirfylgni, tímastjórnun, og almenn aðstoð við rekstur. Fjölbreytni verkefna er mikil og engir tveir dagar eru eins.
Við leitum að einstaklingi sem er skipulagður og nákvæmur, hefur frumkvæði og getur unnið sjálfstætt, er lipur í samskiptum og getur haldið mörgum boltum á lofti samtímis. Reynsla af svipuðu hlutverki er kostur en ekki skilyrði, viðhorf og vinnusemi skipta meira máli.
Staðan hentar vel einstaklingi sem þrífst í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi og vill byggja upp tengslanet og öðlast dýrmæta reynslu.
Vinnutími er mjög sveigjanlegur og eftir samkomulagi. Gert er ráð fyrir um 50% starfi, en hægt að semja sérstaklega um meira eða minna starfshlutfall. Starfið hentar því vel fyrir einhvern í námi.
Starfstöð félagsins er í Reykjavík, en með réttu skipulagi ætti að vera hægt að vinna bróðurpart vinnunnar í fjarvinnu eftir hentisemi.
Íslenska
Enska










