Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra

Löglærður fulltrúi á Sauðárkróki

Staða löglærðs fulltrúa við sýslumannsembættið á Norðurlandi vestra er laus til umsóknar. Starfsstöð er á Sauðárkróki. Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 9 mánaða reynslutíma. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf þann 1. júní nk. eða því sem næst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðallega er um að ræða verkefni á sviði dánarbúa, leyfisveitinga og þinglýsinga, auk annarra tilfallandi verkefna á starfssviði embættisins. Starfið felst í afgreiðslu mála á tilgreindum sviðum, þátttöku í skipulagningu og aðlögun verkefna, móttöku viðskiptavina og daglegum leiðbeiningum vegna lögfræðisviðs, leiðsögn til starfsmanna, o.fl. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf innan stofnunar í stöðugri þróun. Starfið krefst ríklegrar samstarfshæfni og getu til að sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða bakkalár- og meistarapróf í lögfræði, auk annarra skilyrða 2. mgr. 3. gr. sbr. 2. ml. 2. mgr. 5. gr. l. nr. 50/2014
  • Geta til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi er skilyrði
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og samvinnufærni er skilyrði
  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi er kostur
  • Þekking á verkefnum sýslumanna og opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum 
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti 
  • Almenn ökuréttindi

Við leitum að áreiðanlegum starfsmanni til liðs við lögfræðisvið embættisins. Horft verður til þess að umsækjandi falli sem best að þörfum starfsstöðvarinnar og embættisins í heild. 

Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurgata 1, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.WindowsPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar