
Sérfræðingur sýkingavarna hjá sóttvarnalækni
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á sóttvarnasviði með áherslu á sýkingavarnir og málefni öryggisbirgða sbr. sóttvarnalög.
Sóttvarnalæknir starfar í samræmi við sóttvarnalög nr.19/1997. Verkefni sóttvarnalæknis lúta fyrst og fremst sóttvörnum varðandi sjúkdóma sem valdið geta farsóttum, öðrum alvarlegum smitsjúkdómum sem geta ógnað almannaheill og einnig alvarlegum heilsufarslegum afleiðingum eiturefna og geislavirkra efna. Lögin taka einnig til óvenjulegra og óvæntra atburða sem geta haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar meðal þjóða heims.
Sóttvarnalæknir skipuleggur og samræmir sóttvarnir á landsvísu, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum. Sóttvarnalæknir skal vera heilbrigðisstarfsmönnum, og öðrum sem við sóttvarnir fást, til ráðgjafar og veita upplýsingar og fræðslu um forvarnir gegn smitsjúkdómum til almennings. Þá skal sóttvarnalæknir hafa umsjón með afhendingu, dreifingu og notkun öryggisbirgða lyfja, sem kveðið er á um í reglugerð, og annars nauðsynlegs búnaðar í landinu til að bregðast við heilbrigðisógnum á borð við farsóttir.
Nánar um verkefni sóttvarnalæknis má sjá á heimasíðu embættis landlæknis:
-
Vinnur að sýkingavörnum og samhæfingu þeirra á landsvísu
-
Sér um ráðgjöf, fræðslu og gerð leiðbeininga um sýkingavarnir m.a. fyrir almenning og heilbrigðisstarfsmenn
-
Sinnir upplýsingamiðlun og fræðslu til almennings um forvarnir gegn smitsjúkdómum
-
Hefur umsjón með málefnum öryggisbirgða sóttvarnalæknis
-
Sinnir smitrakningu sem kallar á aðkomu sóttvarnalæknis, með öðrum aðilum.
-
Er landstengiliður sýkingavarnastarfs við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina WHO f.h. sóttvarnalæknis
-
Sinnir málefnum varðandi matarbornar hópsýkingar og sýkingum tengdum heilbrigðisþjónustu
-
Tekur þátt í gerð viðbragðsáætlana
-
Heilbrigðismenntun á háskólastigi er skilyrði; menntun í hjúkrunarfræði eða lýðheilsuvísindum er æskileg, framhaldsmenntun er kostur
-
Starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu er nauðsynleg; þekking og reynsla af sýkingavörnum er kostur
-
Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
-
Þekking og reynsla af umsýslu vegna birgðahalds fyrir heilbrigðisþjónustu er kostur
-
Almenn góð tölvukunnátta og þekking á ritvinnslu skilyrði; grunnþekking á gagnavinnslu er kostur
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
-
Frumkvæði, skipulagshæfni, samskiptahæfileikar, þjónustulund
-
Samvinnufús og sveigjanleiki í daglegum störfum
Íslenska
Enska








