
Sérfræðingur viðbragðsáætlana hjá sóttvarnalækni
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á sóttvarnasviði með áherslu á viðbúnað, gerð viðbragðsáætlana og æfinga þeirra auk eftirárýni viðbragða.
Í boði er fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á frumkvæði, fagmennsku og samskiptafærni. Næsti yfirmaður er sóttvarnalæknir en viðkomandi vinnur í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga sóttvarnasviðs og embættisins, sem og sérfræðinga almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Starfið er laust frá og með 01.09.2026.
Sóttvarnalæknir starfar í samræmi við sóttvarnalög nr.19/1997. Verkefni sóttvarnalæknis lúta fyrst og fremst sóttvörnum varðandi sjúkdóma sem valdið geta farsóttum, öðrum alvarlegum smitsjúkdómum sem geta ógnað almannaheill og einnig alvarlegum heilsufarslegum afleiðingum eiturefna og geislavirkra efna. Lögin taka einnig til óvenjulegra og óvæntra atburða sem geta haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar meðal þjóða heims.
Sóttvarnalæknir skipuleggur og samræmir sóttvarnir á landsvísu, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum. Sóttvarnalæknir skal vera heilbrigðisstarfsmönnum, og öðrum sem við sóttvarnir fást, til ráðgjafar og veita upplýsingar og fræðslu um forvarnir gegn smitsjúkdómum til almennings. Þá skal sóttvarnalæknir hafa umsjón með afhendingu, dreifingu og notkun öryggisbirgða lyfja, sem kveðið er á um í reglugerð, og annars nauðsynlegs búnaðar í landinu til að bregðast við heilbrigðisógnum á borð við farsóttir.
Nánar um verkefni sóttvarnalæknis má sjá á heimasíðu embættis landlæknis:
-
Gerð og endurskoðun viðbragðsáætlana í samstarfi við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
-
Skipulagning og framkvæmd æfinga viðbragða auk eftirárýni
-
Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila um viðbúnað og viðbrögð þ.m.t. alþjóðastofnanir
-
Sinnir málefnum öryggisbirgða sóttvarnalæknis
-
Hefur hlutverk í viðbrögðum almannavarna og sóttvarnalæknis
-
Sinnir upplýsingamiðlun, vinnur að gerð leiðbeininga og tekur þátt í uppbyggingu á vefsíðu embættis landlæknis
-
Háskólamenntun er skilyrði. Heilbrigðismenntun er æskileg og framhaldsmenntun er kostur
-
Reynsla í gerð viðbragðsáætlana æskileg
-
Almenn góð tölvukunnátta og þekking á ritvinnslu skilyrði; grunnþekking á gagnavinnslu er kostur
-
Samvinnufús og sveigjanleiki í daglegum störfum
-
Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
-
Reynsla og þekking á starfsemi almannavarna er kostur
-
Starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu og á sviði stjórnsýslu er kostur
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
-
Frumkvæði, skipulagshæfni, samskiptahæfileikar, þjónustulund
Íslenska
Enska








