Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Forstöðumaður Heyrnar og talmeinastöðvar HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) leitar að faglegum og metnaðarfullum leiðtoga til að leiða og þróa starfsemi Heyrnar og talmeinastöðvar. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika. Áhersla er lögð á að skapa árangursdrifið og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk teymisins fær að blómstra og skila framúrskarandi árangri.

Heyrnar og talmeinastöð annast þjónustu við heyrnarlausa, heyrnarskerta og þá sem eru með heyrnar- og talmein. Sinnir heyrnarmælingum, greiningum og meðferð á heyrnar- og talmeinum. Veitir faglega ráðgjöf og annast þjálfun og endurhæfingu heyrnarlausra, heyrnarskertra og þeirra sem eru með heyrnar- og talmein. Sinnir forvörnum í samvinnu við aðrar stofnanir ásamt því að stunda rannsóknir og sinna fræðslu á sínu starfssviði.

Forstöðumaður heyrir undir forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og ber ábyrgð á rekstri í samræmi við skipulag heilsugæslunnar.

Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á rekstri og faglegri stjórnun Heyrnar og talmeinastöðvar HH

  • Annast áætlanagerð og tryggir hagkvæma nýtingu aðfanga

  • Stuðlar að samvinnu og tengslum milli fagaðila innan og utan HH

  • Er leiðandi í að samræma og efla gæði þjónustunnar á landsvísu

  • Tekur þátt í stefnumótun, ber ábyrgð á þróun og samhæfingu gæða- og árangursvísa er varða starfsemina

  • Tryggir þróun verkferla og klínískra leiðbeininga á sviði heyrnar- og talmeinafræðiþjónustu heilsugæslunnar

  • Þróar og innleiðir nýjungar á sviði heyrnar- og talmeinafræðiþjónustu innan HH

  • Stuðlar að jákvæðri vinnustaðamenningu og árangursríku teymisstarfi

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistaranám kostur

  • Starfsreynsla og þekking á málefni heyrnar- og talmeinafræði, fötlunarfræði eða á samsvarandi sviði kostur

  • Þekking, reynsla og hæfni á stjórnun og rekstri

  • Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Hæfni og áhugi til að leiða þverfaglegt teymi

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og jákvætt viðmót

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Góð almenn tölvuþekking

  • Góð hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku

Auglýsing birt15. apríl 2026
Umsóknarfrestur29. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hraunbær 115, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar