

Sérfræðingur á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Metnaðarfullur sérfræðingur óskast til framtíðarstarfa á heimili fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan sérfræðing á heimili fyrir fatlað fólk í fjölbreytt og spennandi starf. Starfshlutfall er 80-100% og þarf viðkomandi að geta unnið allar tegundir vakta. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og er starfið laust frá 1.ágúst 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinna að gerð þjónustu- og einstaklingsáætlana í samráði við notanda og endurmat á þeim
- Sinnir faglegu starfi í samstarfi og samráði við þjónustunotendur og forstöðumann
- Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna
- Virkjar þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
- Veita þjónustunotendum einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning í daglegu lífi
- Almenn heimilisstörf
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun (B.A/B.S) á sviði þroskaþjálfunar, sálfræði, uppeldisfræði, iðjuþjálfunar eða öðru viðurkenndu fagsviði sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg
- Reynsla af verkefnastýringu eða utan umhaldi verkefna kostur
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólk
- Samstarf- og skipulagshæfileikar
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Samviskusemi, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvætt viðmót og rík þjónustulund
- Íslenskukunnátta skilyrði
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir, Áróra Huld Bjarnadóttir, Forstöðumaður í síma: 585-5769, netfang: [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2026.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska



































