Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmenn í tímavinnu - Bókasafn

Bókasafn Hafnarfjarðar óskar eftir starfsmönnum í tímavinnu um helgar.

Bókasafn Hafnarfjarðar er upplýsinga- og menningarstofnun sem ætlað er að efla frjálsan og óheftan aðgang almennings að upplýsingum og fjölbreyttu efni og viðburðum. Um er að ræða vinnu á laugardögum, sunnudögum og einstaka virkum dögum frá og með 1. júlí 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Afgreiðsla og almenn þjónusta við gesti bókasafnsins
  • Léttar heimildaleitir í bókasafnskerfinu Alma fyrir viðskiptavini bæði á staðnum og í síma
  • Aðstoða viðskiptavini við að setja inn pantanir á efni
  • Aðstoða viðskiptavini við útlán/skil á sjálfsafgreiðsluvélum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf æskilegt
  • 18 ára eða eldri
  • Reynsla af vinnu á bókasafni kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum kostur
  • Góð þjónustulund og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvukunnátta og eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar í starfi
  • Góð íslensku kunnátta

Upplýsingar um starfið veitir Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður [email protected] sími 585 5691.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélaga Hafnarfjarðar (STH).

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar