

Sölu- og þjónusturáðgjafi - fullt starf - Flügger Akureyri 🎨
Vegna aukinna umsvifa leitar Flügger að sölu- og þjónusturáðgjafa til starfa í fullt starf í verslun sína á Akureyri!
Hefur þú áhuga á að veita góða þjónustu og ráðgjöf, innanhúshönnun, málningu, litum og verkferlum?
Við leitum að aðila sem finnst spennandi að aðstoða viðskiptavini við málningarverkefnin sín.
Starfið felur í sér afgreiðslu, þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina, ásamt því að tryggja að verslunin sé snyrtileg og aðgengileg fyrir viðskiptavini.
Við leitum eftir ábyrgum, traustum og þjónustuliprum einstakling sem býr yfir góðri samskiptahæfni. Reynsla af sambærilegu starfi, málningarvinnu og/eða iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
Verslunin er opin alla virka daga frá 08:00-18:00 og á laugardögum 10:00-15:00. Starfsmaður í fullu starfi vinnur á vöktum samkvæmt vaktaplani á virkum dögum og annan hvern laugardag.
Hjá Flügger eru verkefnin fjölbreytt og alltaf eitthvað nýtt og spennandi að gerast hjá okkur. Við erum samhent teymi sem þrífst á því að eiga góða vinnudaga saman og tryggja viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu þegar þeir ætla að breyta til hjá sér.
Leitað er að aðila sem náð hefur 18 ára aldri og við hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um starfið sem fyrst, óháð kyni eða bakgrunni.
- Afgreiðsla
- Sala
- Þjónusta
- Ráðgjöf
- Áfyllingar
Íslenska










