
S4S - Ellingsen
Ellingsen var stofnað árið 1916 af Othar Ellingsen og var meginhlutverk fyrirtækisins sérhæfing í sölu á veiðarfærum og öðru því sem tengdist útgerð, en í seinni tíð eða frá árinu 1990 var áherslum í verslun breytt í að selja útivistarvörur.
Árið 2017 keypti S4S ehf verslun Ellingsen og síðan þá hafa orðið miklar breytingar á versluninni.
Ellingsen er í dag útivistaverslun fyrir alla fjölskylduna þar sem fólk getur gengið að góðri þjónustu og vöruúrvali. Rafhjólasetur Ellingsen var opnað árið 2020 og fer ört stækkandi.
Verslanir Ellingsen eru í Reykjavík, á Akureyri auk vefverslunarinnar www.ellingsen.is.
Hjá S4S starfa um 180 manns og hefur fyrirtækið margoft hlotið viðurkenningu VR sem fyrirmyndavinnustaður auk þess að hafa verið valið fyrirtæki ársins. Þá hefur S4S fengið viðurkenningu Creditinfo um fyrirmyndarfyrirtæki árlega undanfarin ár.

Starfsmaður í verslun og lager Ellingsen
S4S leitar að öflugum og metnaðarfullum einstakling í verslun í Ellingsen Fiskislóð. Um fullt starf er að ræða.
Starfsmaður hefur umsjón með daglegum rekstri vörulagers, afgreiðslu á pöntunum, móttöku á vörum og sölu og þjónustu í verslun.
Vinnutími er alla virka daga kl. 9-17.
Við leitum að manneskju, 25 ára eða eldri, með mikla skipulagshæfileika, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði. Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta í verslun.
- Dagleg umsjón með birgðahaldi og vöruflæði lagers.
- Móttaka og afhending á vörum ásamt skráningu og tiltekt á vörum.
- Umsjón með umhirðu lagersvæðis.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Úrræðagóður starfsmaður, jákvæður og lipur í mannlegum samskiptum.
- Búi yfir skipulagshæfileikum, sjálfstæðum vinnubrögðum og frumkvæði.
- Hafi þjónustulund og sé laghentur.
- Góð tölvufærni, reynsla af Navision er kostur.
- Reynsla af vöru- og lagerstjórnun er kostur.
- Vinnur vel undir álagi.
- Stundvísi og góð framkoma.
- Sveigjanleiki.
Auglýsing birt28. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Fiskislóð 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaBirgðahaldDynamics NAVFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMetnaðurMicrosoft ExcelMicrosoft OutlookMicrosoft WordNavisionReyklausSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiSveigjanleikiTeymisvinnaVandvirkniVinna undir álagiWindowsÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sumarafleysingar í hlutastarf
Cafe Catalína ehf.

Starfsmaður í verslun Glerártorg
Kappahl

Kjötkompaní - framtíðarstarf í verslunum
Kjötkompaní ehf.

Starfsmaður óskast í vöruafgreiðslu hjá Málmsteypunni
Málmsteypan

Verslunarstjórar á höfuðborgarsvæðinu
Ísbúð Huppu

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku-Reykjavík
MAX1 | VÉLALAND

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku - Hafnarfjörður
MAX1 | VÉLALAND

Útkeyrsla og lager
Autoparts.is

Starfsmaður á verkfæralager Icelandair - Keflavíkurflugvelli
Icelandair

Sölufulltrúi 66° Norður á Keflavíkurflugvelli
66°North

Vinna á verkstæði
Aflvélar ehf.

Framtíðarstarf hjá RÝMI
Rými