
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 30 þúsund íbúa og um um 2500 starfsfólk sem sinna fjölbreyttum störfum á um 70 starfsstöðvum um allan bæ. Mannauðurinn er okkur dýrmætur.
Lögð er áhersla á að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Við viljum vera áhugaverður og góður vinustaður og árangur okkar er undir reyndu og hæfileikaríku fólki kominn.
Við leggjum áherslu á að skapa starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að efla þekkingu sína, hefur tækifæri til þróunar og fái hvatningu til að sýna frumkvæði og njóta sín í starfi sem skilar sér í aukinni starfsánægju og góðri þjónustu við bæjarbúa.
Við erum heilsueflandi vinnustaður og viljum að öllum líði vel í vinnunni og bæði stjórnendur og starfsfólk leggja sitt að mörkum við að ýta undir og skapa sem best vinnuumhverfi á öllum okkar starfsstöðvum.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í hóp starfsmanna hjá Hafnarfjarðarbæ þá hvetjum við þig til að senda inn umsókn.

Flokksstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Á sumrin er Vinnuskóli Hafnarfjarðar stærsta starfstöðin í bænum. Starf í skólanum gefur einstaka möguleika á því að njóta útiveru og eiga þátt í að prýða bæjarlandið í samstarfi við ungt fólk. Auglýst er eftir starfsfólki til sumarstarfa við flokksstjórn almennra hópa Vinnuskólans sem starfa út frá grunnskólum Hafnarfjarðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun starfs vinnuskólahóps og vera fyrirmynd ungs fólks
- Leiðbeina nemendum um vinnubrögð og verklag
- Vinna með uppbyggileg samskipti og skapa liðsheild í nemendahópnum
- Skil á tímaskráningum og frammistöðumati nemenda
- Önnur störf samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur
- Áhugi á að starfa með ungu fólki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
- Samskiptafærni og hæfni til að vera nemendum góð fyrirmynd
- Þekking á starfi Vinnuskólans eða önnur reynsla af starfi með börnum eða unglingum er kostur
- Reynsla af garðyrkju- og umhirðutengdum störfum er kostur
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
- Góð íslensku -og enskukunnátta, B2 skv. samevrópskum tungumálaramma
Aðrar upplýsingar um starfið
- Flokkstjórar hefja störf 4. júní
- Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags
- Flokksstjórar almennra grunnskólahópa hópa í Vinnuskóla Hafnarfjarðar geta unnið að hámarki 300 klst
- Vinnuvika starfsfólks Hafnarfjarðar er 36 klst.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir Maríanna Wathne Kristjánsdóttir, umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar í gegnum netfangið [email protected]
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.
Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur20. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (9)

Sérfræðingur í fjárreiðudeild
Hafnarfjarðarbær

Hafnarvörður - Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í Skarðsel - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í Drekasel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur á Læk - athvarfið Lækur
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Kennari – Leikskólinn Tjarnarás
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær
Sambærileg störf (12)

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Starfsfólk á þjónustustöð á Akureyri
Vegagerðin

Hópstjóri á Verkstæði
Toyota

Plastsuðumaður/Plastic Welder/Spawacz tworzyw sztucznych/Zavarivač plastike
VikNordik ehf.

Vinna í framleiðslu / Production job
Freyja

VERKEFNASTJÓRI ÓSKAST/PROJECT MANAGER WANTED
Hort fire guard ehf.

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Sorptunnuþrif ehf. - þrif - fullt starf
Umsókn um almennt starf Sorptunnuþrif

Ertu öflugur skipuleggjandi sem kann að leiða fólk og halda mörgum boltum á lofti?
Slippurinn Akureyri ehf

Starfsmaður á þjónustustöð á Sauðárkróki
Vegagerðin

Svæðisstjóri - tímabundið starf
Skólamatur

Meiraprófbílstjóri óskast framtíðarstarf
Jarðtækni