
Björgun-Sement
Árið 2025 sameinuðust Björgun og Sementsverksmiðjan undir einu nafni: Björgun-Sement, en rætur fyrirtækjanna ná aftur til ársins 1952.
Björgun-Sement framleiðir hágæða steinefni úr námum á sjó og landi og flytur inn sement fyrir íslenskan byggingariðnað. Fyrirtækið sinnir einnig hafnardýpkunum og dælingu á sjávarefnum ásamt því að starfrækja námuvinnslu.
Starfsemin felur í sér:
• Framleiðslu, öflun og afhendingu hágæða steinefna úr námum.
• Innflutning og dreifingu á sementi frá Heidelberg Materials í Noregi.
• Dýpkunarframkvæmdir og efnistöku úr sjó með sérútbúnum dæluskipum.
• Námuvinnslu og afhendingu steinefna fyrir mannvirkjagerð um allt land.
• Hafnarþjónustu með margvíslegri lestun og losun hráefna.
Björgun-Sement byggir starfsemina á hringrásarhugsun, ábyrgri auðlindanýtingu og ströngum gæðaviðmiðum. Steinefni fyrir steinsteypu og malbik eru CE-vottuð og bæði sement og stór hluti steinefna eru með með vottaðar umhverfisyfirlýsingar (EPD). Þá hefur sementsbirgirinn Heidelberg Materials byggt kolefnisföngunarstöð sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 400.000 tonn CO₂ á ári sem gerir að verkum að sementið fæst með mun minna kolefnisspori en áður.
Innflutningur sements, sem fer í gegnum starfsstöðina á Akranesi, hefur haft vottað gæðastjórnunarkerfi ISO 9001 frá árinu 1998 ásamt því að vera með vottað heilsu- og öryggiskerfi ISO 45001 og umhverfisvottun ISO 14001. Aðrar einingar fyrirtækisins starfa án formlegrar ISO-vottunar en með sama metnað að leiðarljósi.
Með ströngum gæðaviðmiðum, vottuðum umhverfisyfirlýsingum, lágmörkun kolefnisspors og vottuðu stjórnkerfi tryggir Björgun-Sement áreiðanleg steinefni og sement fyrir sjálfbærari mannvirki framtíðarinnar.
Björgun-Sement hefur verið dótturfélag Eignarhaldsfélagsins Hornsteins frá árinu 2010 en jafnframt starfrækir Hornsteinn fyrirtækið BM Vallá. Um 200 starfsmenn vinna að verkefnum fyrirtækisins víða um land, þar sem markmiðið er að gera íslenska mannvirkjagerð vistvænni.

Rekstrar- og viðhaldsstjóri
Björgun Sement leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með sterkan tæknilegan bakgrunn, leiðtogafærni og víðtæka þekkingu á viðhaldi og framkvæmdum.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í alþjóðlegu umhverfi, samvinna með öflugri liðsheild sem vinnur saman að því markmiði að byggja vistvænni framtíð.
---
Hjá Björgun-Sement starfar samheldinn hópur þar sem öryggi, fagmennska og góð vinnuaðstaða eru í fyrirrúmi. Í Álfsnesvík eru framleidd hágæða steinefni fyrir metnaðarfulla viðskiptavini og mikil áhersla er lögð á áreiðanleika, gæði og góða þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með endurbótum, viðgerðum og viðhaldi fasteigna, skipa, bíla, tækja og framleiðslubúnaðar
- Skipulagning, verkstýring og eftirfylgni framkvæmda- og viðhaldsáætlana
- Kostnaðareftirlit, greining rekstrar- og viðhaldsgagna, ýmis skýrslugerð og tillögur að umbótum
- Fagleg og skilvirk samskipti og miðlun upplýsinga til stjórnenda, verktaka, framleiðenda, hönnuða og annarra hagsmunaaðila
- Tæknilegur stuðningur og þátttaka í innleiðingu nýrra tækni- og gervigreindarlausna
- Þátttaka í gæða-, öryggis- og mannauðsmálum tengdum framkvæmdum og viðhaldi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í vél-, iðn-, tæknifræði eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi tölvufærni
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Jákvætt viðhorf og mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri
Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur26. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Víðinesvegur 22 | Álfsnesvík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiHeiðarleikiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Flokksstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær

Þaktak leitar að starfsmönnum
Þaktak ehf

Byggingarstarfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Framkvæmdastjóri
Álkerfi

Verkstjóri byggingarframkvæmda
Landstólpi ehf

Starfsmaður í framleiðslustöð
Malbikstöðin

Viltu stýra stærstu jarðhitaauðlindum Íslands?
Orkuveitan

Meiraprófsbílstjóri | Heavy vehicle driver
Björgun-Sement

Starfsmaður í skiltagerð
Merking ehf

Verkstjóri rafmagns á Suðurnesjum
HS Veitur hf

ACCOMMODATION MANAGER - HOTEL
Hótel Dyrhólaey

Sumarstörf í garðyrkjudeild Ungmenni fædd 2010 og eldri
Fjarðabyggð