

Viltu stýra stærstu jarðhitaauðlindum Íslands?
Rannsóknar og nýsköpunarsvið Orkuveitunnar leitar að framsýnum og drífandi leiðtoga í hlutverk forstöðumanneskju auðlindastýringar jarðhita. Forstöðumanneskjan gegnir mikilvægu hlutverki í stjórnendateymi Rannsókna og nýsköpunar og er í nánu samstarfi við dótturfélögin Orku náttúrunnar, Veitur og Carbfix.
Forstöðumanneskja auðlindastýringar leiðir öflugt og samhent teymi auðlindasérfræðinga og ber ábyrgð á að móta stefnu með það að markmiði að tryggja ábyrga nýtingu jarðhitans. Í því felst ráðgjöf við rekstur og þróun jarðhita, öflugt auðlindaeftirlit og gerð forðaspáa til framtíðar. Nýsköpun, frumkvæði og virðisaukandi lausnir eru einnig lykilþættir í starfinu til að tryggja ábyrga og hagkvæma nýtingu auðlinda.
Jarðhitinn er grunnur að þeim lífsgæðum sem við búum við á Íslandi í dag og Orkuveitan er stærsta jarðhitafyrirtæki landsins. Jarðhitaauðlindir Orkuveitunnar eru bæði lág- og háhitasvæði á Íslandi og eru nýttar í daglegum rekstri af dótturfélögum Orkuveitunnar.
Forstöðumanneskjan leiðir eininguna Auðlindastýring – Jarðhiti og ber ábyrgð á heildarárangri hennar í nánu samstarfi við aðra stjórnendur og starfsfólk Rannsókna og nýsköpunar.
Ef þú vilt taka virkan þátt í ábyrgri auðlindanýtingu og framþróun í jarðhita, býrð yfir framúrskarandi samskiptafærni og leiðtogahæfni, þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið.
Við leitum að árangursdrifnum leiðtoga sem býr yfir:
- Marktækri reynslu af því að byggja upp liðsheild og leiða til árangurs
- Reynslu af stjórnun og rekstri auðlinda
- Ríkri umbótahugsun auk framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfileika
- Þekkingu og reynslu af því að nýta tækni og nýsköpun
- Sterkri greiningafærni og reynslu af auðlindastýringu
- Metnaði, drifkrafti og seiglu til að uppfylla krefjandi markmið
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Rannsóknar- og nýsköpunarsvið Orkuveitunnar er öflugt og samhent teymi sem horfir til langs tíma í starfsemi Orkuveitunnar. Teymið tryggir, verndar og treystir á ábyrga og sporlétta nýtingu auðlinda okkar á grunni umfangsmikils rannsóknar- og nýsköpunarstarfs. Sviðið ber m.a. ábyrgð á vöktun og stýringu auðlindanýtingar hjá Veitum og Orku náttúrunnar, að afla nýrra orkukosta og neysluvatnsauðlinda og tekur þátt í alþjóðlegum nýsköpunarverkefnum og rannsóknasamstarfi. Áhersla er nú á að afla aukinnar grænnar orku bæði til framleiðslu á rafmagni og heitu vatni með það að markmiði að viðhalda þeim grunni lífsgæða sem við þekkjum í dag.
Orkuveitan samanstendur af móðurfélaginu og fjórum dótturfélögum, Orku náttúrunnar, Veitum, Ljósleiðaranum og Carbfix og hefur það hlutverk að styðja vaxandi samfélag, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu. Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.
Umsóknarfrestur er til og með 20.maí 2026
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur. Við tökum jafnréttið alvarlega og viljum hafa sem fjölbreyttastan hóp starfsfólks og hvetjum því öll kyn til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Hera Grímsdóttir, framkvæmdarstýra Rannsóknar og nýsköpunarsviðs Orkuveitunnar, í netfanginu [email protected]
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður listi yfir umsækjendur ekki birtur.
Íslenska










