

Viltu segja sögurnar sem skipta máli?
Orkuveitan leitar að skapandi samfélagsmiðlastjóra, tímabundið í eitt ár.
Þetta er ekki bara starf. Þetta er tækifæri til að segja sögur um orku, nýsköpun og framtíðina.
Við erum að byggja upp innviði samfélagsins, þróa lausnir í loftslagsmálum og vinna að verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif – hér heima og á heimsvísu.
Og við þurfum einhvern sem getur sagt frá því á lifandi, áhugaverðan og nútímalegan hátt.
Hvað myndir þú gera?
- Búa til efni sem fólk vill sjá (og deila)
- Fanga sögur úr daglegu starfi og breyta þeim í áhugavert efni
- Keyra samfélagsmiðla fyrir nokkur af sterkustu vörumerkjum landsins
- Prófa nýjar leiðir, nýjar hugmyndir og nýja miðla
- Sjá hvað virkar og gera meira af því
Af hverju þetta starf?
Þú færð:
- Aðgang að verkefnum sem eru stór og áhugaverð
- Teymi sem er metnaðarfullt, skapandi og styður við þig
- Svigrúm til að prófa, skapa og hafa áhrif
- Innsýn í framtíð orkumála, tækni og samfélags
- Að vera hluti af frábærum vinnustað í heilbrigðu vinnuumhverfi
Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar og sögurnar eru margar.
Hver ert þú?
Þú þarft ekki að passa í kassa.
En þú ert líklega:
- Með tilfinningu fyrir góðu, áhugaverður og fallegu efni
- Áttar þig á hvað virkar á samfélagsmiðlum
- Vinnur sjálfstætt og færð frábærar hugmyndir sem þú hrindir í framkvæmd
- Til í að fara á vettvang, taka myndir, klippa og skrifa
- Elskar að tala við og kynnast fólki, þú sýnir fólki raunverulegan áhuga
Viðkomandi starf er á Samskiptasviði Orkuveitunnar sem vinnur með vörumerki Orkuveitunnar og fyrirtækja hennar; Orku náttúrunnar, Veitur, Carbfix og Ljósleiðarann auk þess sem við rekum áfangastaðinn Elliðaárstöð í Elliðaárdal og Jarðhitasýninguna á Hellisheiði.
Íslenska
Enska





