Ceedr
Ceedr

Sérfræðingur - erlendir miðlar

Ceedr leitar að árangursdrifnum sérfræðingi í erlendum miðlum, með áherslu á samfélagsmiðla og sterka þjónustulund.

Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf þar sem þú færð tækifæri til að vinna með skemmtileg vörumerki, hitta viðskiptavini, taka þátt í kynningum og leggja þitt af mörkum til að ná árangri í rekstri stafrænna herferða á erlendum miðlum.

Hlutverk og verkefnið:

  • Sérfræðingur í erlendum miðlum ber ábyrgð á uppsetningu og framkvæmd stafrænna herferða, með áherslu á Meta Ads en jafnframt Google ads. Kostur ef reynsla af öðrum miðlum.
  • Ráðgjöf varðandi stefnu viðskiptavina almennt í málefnum stafrænna birtinga sem og birtingafé í takt við markmið.
  • Stuðla að góðum samskiptum við viðskiptavini en einnig innanhúss í teymum og við verkefnastjóra.
  • Tryggja mánaðarlega skýrslugjöf í formi skýrslna á Slides og/eða hlekk á mælaborð sem fer annaðhvort á tengil verkefnis eða beint á viðskiptavin.
  • Tryggja fagmennsku í starfi og alltaf vinna eftir bestu hagsmunum stofunnar.
  • Halda sér upplýstum um nýjustu vendingar í tækninýjungum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Góð samskiptafærni.
  • Frumkvæði, drifkraftur og sveigjanleiki.
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Þekking á samfélagsmiðum og Meta Business Portfolio.
  • Þekking á GA4 og Looker Studio.



Ceedr er hluti af Pipar\TBWA sem hlaut nafnbótina auglýsingastofa ársins nýverið, þriðja árið í röð. Ceedr er með starfsstöðvar í Reykjavík, Osló, Kaupmannahöfn og Helsinki og fara umsvif á Norðurlöndunum vaxandi. Ceedr er jafnframt Hubspot Platinum Partner ásamt því að vera margverðlaunuð á sviði stafrænna birtinga í Evrópu. Komdu í öflugan hóp sérfræðinga og skemmtilegan vinnustað.

www.ceedr.com

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí.


Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Nánari upplýsingar veita Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 8, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar