Takk ehf
Takk ehf
Takk ehf

Leiðtogi söluteymis - viltu hafa góð áhrif á samfélagið?

Viltu:

  • Þróa þig sem leiðtoga í gegnum fjölbreyttar áskoranir
  • Hafa mælanleg áhrif á samfélagið á hverjum degi
  • Taka þátt í metnaðarfullu og framsæknu fyrirtæki á hraðri uppleið
  • Eiga kost á að vera leiðandi í sölustarfsemi hérlendis


Þá gæti þetta verið rétta tækifærið fyrir þig!

Við hjá Takk leitum að metnaðarfullum og drífandi leiðtoga sem vill taka lykilhlutverk í áframhaldandi þróun fyrirtækisins.

Í starfinu berðu ábyrgð á að þróa og stýra söluherferðum í vettvangssölu („face-to-face“ og „door-to-door“) á landsvísu í samstarfi við leiðandi almannaheillafélög. Áherslan er á uppbyggingu teymisins, ekki einungis viðhald.

Starfsemi
Takk er markaðsfyrirtæki sem vinnur með íslenskum almannaheillafélögum að því að gera heiminn að betri stað. Starf okkar einblínir á að skapa rými og stuðning fyrir almannaheillafélög í gegnum ráðgjöf, markaðssetningu, sölu og rekstur. Svo félögin geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli: Að hjálpa þeim sem mest þurfa á því að halda.

Starfsumhverfi
Við setjum starfsánægju í efsta sæti og leggjum mikið upp úr öflugu félagslífi, samvinnu, sanngjörnum launakjörum, jafnrétti og sjálfstæði í starfi. Við sýnum þetta í verki og hefur það skilað okkur fjölda viðurkenninga fyrir framúrskarandi starfsánægju, ásamt vottun fyrir að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki (B Corp), eins og sjá má á vinnustaðasíðunni okkar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða dagleg starfsemi og árangur söluteymis
  • Leiða verkefni sem snúa að þróun teymis
  • Straumlínulaga og bæta ferla teymis
  • Þróa nýjar vörur, nálganir og söluleiðir
  • Taka virkan þátt í stefnumótun og þróun fyrirtækisins
  • Stuðla að þekkingarforskoti á sviði vettvangssölu á Íslandi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Krafa:
    • Framúrskarandi samskiptafærni og samvinnuhæfni
    • Áhugi á samfélagsmálum og vilji til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið
  • Kostur:
    • Reynsla af sölustörfum með góðum árangri
    • Reynsla af töflureiknum (Excel, Google Sheets) og/eða CRM kerfum
    • Reynsla sem stjórnandi
    • Reynsla af verkefnastjórnun eða vöruþróun
Fríðindi í starfi
  • Góð laun og réttlátt bónuskerfi sem hvetur
  • Jákvætt vinnuumhverfi sem styður við og eflir
  • Öflugt félagslíf sem styður við jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Greidd notkun á farsíma og heimaneti.
  • Afmælisfrí til að njóta dagsins.
  • Jöfnum framlag starfsfólks til almannaheillafélaga árlega.
  • Meira hér
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Nóatún 17, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar