Advania
Advania
Advania

Sölusérfræðingur Rekstrarlausna Advania

Brennur þú fyrir ráðgjöf, vilt skapa raunverulegt virði og elskar að kynna nýjar tæknilausnir? Við leitum að liðsfélaga í öflugt söluteymi hjá Rekstrarlausnum Advania.

Við leitum að kraftmiklum, úrræðagóðum og metnaðarfullum sölusérfræðingi með reynslu á sviði upplýsingatækni. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og gefur tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í samstarfi við viðskiptavini og sérfræðinga.

Rekstrarlausnir Advania

Innan Rekstrarlausna starfa tæplega 200 einstaklingar við rekstur, þjónustu og ráðgjöf tengt öllu sem viðkemur tölvukerfum fyrirtækja og stofnana. Við bjóðum uppá fjölbreytt úrval lausna tengt netrekstri, afritunartöku, hýsingu, öryggismálum, gervigreind og skýjalausnum.

Helstu verkefni eru meðal annars:

  • Söluráðgjöf til nýrra og núverandi viðskiptavina
  • Uppbygging og viðhald traustra langtímasambanda
  • Undirbúningur og kynningar lausna
  • Tilboðsgerð og markviss eftirfylgni
  • Virkt samstarf við sérfræðinga og birgja

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur góða þekkingu á upplýsingatækni, sérstaklega á sviði hýsingar, reksturs, upplýsingaöryggis og skýjalausna
  • Hefur reynslu af ráðgjöf og sölu tæknilausna
  • Sýnir skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hefur ríka þjónustulund og sterka hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hefur gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Hefur menntun sem nýtist í starfi

Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar punktana hér að ofan þá hvetjum við þig samt sem áður til þess að sækja um, þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að í þetta eða annað starf.

Við hvetjum öll kyn að sækja um.

Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur8. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar