Olís ehf
Olís ehf
Olís ehf

Leiðtogi Tæknimála – Glans Þvottastöðvar

Ert þú með reynslu af umsjón, stýringum eða öðru tengdu fyrir sjálfvirka þvottastöð?

Olís leitar eftir öflugum og lausnamiðuðum leiðtoga til að leiða tækniteymi Glans þvottastöðvar við fjölbreytt og spennandi verkefni. Í starfinu felst ábyrgð á uppsetningu, viðhaldi og umsjón á þvottastöðvum Glans.

Viðkomandi mun starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi með öflugu teymi. Um er að ræða 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Ábyrgð á daglegri umsjón, viðhaldi og eftirliti með þvottastöðvum Glans

· Ábyrgð á tækniteymi Glans

· Takast á við tæknivandamál

· Aðstoða viðskiptavini

· Bakvaktir

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Iðnmenntun eða annar tæknilegur bakgrunnur

· Góða tölvuþekkingu og þekking á iðnstýringum mikilvæg

· Áreiðanleiki og geta tekist á við vandamál

· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

· Vinna vel í teymi

· Ökuréttindi

Fríðindi í starfi:

· Aðgangur að Velferðarþjónustu

· Afsláttarkjör Olís

· Styrkur til heilsueflingar

· Mötuneyti

Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, uppbyggileg samskipti og fagleg vinnubrögð.

Glans er vörumerki innan Olís sem rekur í dag 6 þvottastöðvar eða 4 á höfuðborgarsvæðinu, eina á Selfossi og þvottabása á Akureyri.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2026

Menntunar- og hæfniskröfur
Auglýsing birt19. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútuvogur 5, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnátta
Starfsgreinar
Starfsmerkingar