
Héðinshurðir ehf
Héðinshurðir ehf er dótturfyrirtæki Héðins hf og hefur verið með iðnaðar- og bílskúrshurðir á boðstólnum í áraraðir og áunnið sér traust viðskiptavina fyrir vandaðar hurðir sem standast sveiflukennt íslenskt veðurfar með glæsibrag.
Starfsmenns Héðinshurða veita framúrskarandi þjónustu og sjá m.a. um sölu, uppsetningar, viðhald og viðgerðir á iðnaðar- og bílskúrshurðum.

Þjónustumaður – uppsetningar og þjónusta
Vegna aukinna verkefna leitum við að öflugum og ábyrgum þjónustumanni til framtíðarstarfa við uppsetningar, viðhald og þjónustu á bílskúrshurðum, iðnaðarhurðum og gluggalausnum.
Um er að ræða fjölbreytt og sjálfstætt starf sem fer að mestu fram á vettvangi hjá viðskiptavinum. Þú vinnur náið með reyndu teymi og færð góða þjálfun og stuðning við innleiðingu í starfið.
Hjá Héðinshurðum leggjum við áherslu á fagmennsku, traust og góða þjónustu – bæði gagnvart viðskiptavinum og hvert öðru.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetningar á bílskúrshurðum, iðnaðarhurðum og gluggum
- Viðgerðir, viðhald og þjónusta á hurðum og tengdum búnaði
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini á vettvangi
- Ýmis almenn þjónustu- og uppsetningarverk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnaðarmenntun eða sambærileg reynsla er æskileg
- Bílpróf (B) er skilyrði
- Sjálfstæð, ábyrg og lausnamiðuð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót og góð þjónustulund
- Góð kunnátta í íslensku og/eða ensku
- Áhugi á tæknilegum lausnum og verklegri vinnu
Fríðindi í starfi
- Samkeppnishæf laun
- Þjálfun og stuðning frá reynslumiklum sérfræðingum
- Gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- Matarstyrk
- Vinnufatnað og vinnusíma
- Frábær starfsandi og sterk liðsheild
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Íshella 10, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bifvélavirki fyrir Max1/Vélaland-Hafnarfjörður
MAX1 | VÉLALAND

Sumarstarf - Vélaleiga og verkstæði
Rúko hf

Rafvirkjar, vélvirkjar og vélstjórar / Electricians, Mechanics, and Marine Engineers
Alcoa Fjarðaál

Vélvirki - Vélfræðingur - Vélstjóri
Rúko hf

Concrete worker
Starkaðshús ehf.

Byggingarstarfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Sérfræðingur í véla- og kælikerfum (Mechanical & HVAC Specialist)
Borealis Data Center

Rekstrar- og viðhaldsstjóri (Maintenance Manager)
Borealis Data Center

Bifvélavirki fyrir Max1-Reykjavík
MAX1 | VÉLALAND

Jarðvinna / Groundwork
Membra

Bilanagreininga snillingur í sendibílum óskast
Kraftur hf.

Við leitum að hörðum nöglum
Grafa og Grjót ehf