
Framkvæmdastjóri
Álkerfi ehf. óskar eftir að ráða öflugan framkvæmdastjóra sem vill taka virkan þátt í að móta næsta kafla fyrirtækisins. Félagið sérhæfir sig í svalagöngum, álsvalakerfum, svalalokunum og handriðum sem henta öllum gerðum bygginga, frá fjölbýlishúsum og einbýlum til stærri mannvirkja.
Um er að ræða lykilstöðu þar sem reynir á heildarsýn, rekstrarreynslu og getu til að leiða fjölbreyttan hóp starfsmanna í átt að skýrum markmiðum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón með daglegum rekstri og stjórnun félagsins
- Umsjón með stefnumótun, markmiðasetningu og áætlanagerð
- Ábyrgð á samþættingu rekstrareininga og tryggja gott flæði milli starfssviða í kjölfar sameiningar
- Þróun og efling þjónustu og vöruframboðs
- Leiða áframhaldandi þróun og vöxt fyrirtækisins
- Samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og lykilhagsmunaaðila
- Yfirumsjón með mannauðsmálum félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af rekstri, stjórnun og fjármálum
- Leiðtogahæfileikar og sterk framtíðarsýn
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Framsýni og metnaður til að ná árangri
- Góð færni í tjáningu í ræðu og riti
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Um Álkerfi ehf:
Álkerfi ehf. er rótgróið fyrirtæki sem starfar á sviði álsmíði og lausna fyrir byggingariðnað. Fyrirtækið hefur byggt upp sterka stöðu á markaði með áherslu á gæði, fagmennsku og áreiðanleika í öllum sínum verkefnum.
Undir merkjum félagsins starfar jafnframt rekstur Sólskála og Glugga og garðhúsa, sem býður fjölbreyttar og vandaðar lausnir fyrir heimili og fyrirtæki.
Álkerfi þjónustar bæði einstaklinga og fyrirtæki og leggur metnað í að veita framúrskarandi þjónustu og endingargóðar lausnir. Hjá fyrirtækinu starfar reynslumikið og samstillt teymi. Framundan eru spennandi tækifæri til áframhaldandi vaxtar og þróunar þar sem áhersla er lögð á nýsköpun, skilvirkni og sterk viðskiptasambönd.
Nánari upplýsingar má finna á www.alkerfi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511-1225.
Íslenska
Enska










