
OBHM
Orlofssjóður BHM hefur það markmið að auðvelda félögum að njóta orlofstöku sem best, enda er mikilvægt að hvíla sig og hlaða batteríin. Sjóðurinn leigir félögum sínum orlofshús og íbúðir um land allt. Einnig er hægt að kaupa gjafabréf í flug, útilegu- og veiðikortið.
Framkvæmdastjóri Orlofssjóðs BHM
Orlofssjóður BHM gegnir mikilvægu hlutverki í að styðja félagsfólk BHM til að njóta fjölbreyttra og hagkvæmra orlofskosta. Starfsemi sjóðsins er umfangsmikil og spannar rekstur orlofseigna um allt land ásamt fjölbreyttri þjónustu tengdri orlofsmálum.
Framkvæmdastjóri leiðir daglegan rekstur sjóðsins og vinnur í nánu samstarfi við stjórn Orlofssjóðs og starfsfólk BHM að stefnumótun og eftirfylgni markmiða. Í boði er fjölbreytt starf í lifandi umhverfi fyrir einstakling sem vill taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu á starfsemi sem skiptir félagsfólk BHM miklu máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og rekstur sjóðsins, þ.m.t. áætlanagerð og mannaforráð
- Eftirfylgni með ákvörðunum stjórnar og framkvæmd þeirra
- Undirbúningur funda og gagnaöflun
- Gerð rekstraráætlana og ábyrgð á fjármálum sjóðsins
- Umsjón með kynningarstarfi og upplýsingagjöf
- Stefnumótun og langtíma markmiðasetning í samstarfi við stjórn
- Samskipti við félagsfólk, verktaka, fyrirtæki og aðra hagaðila
- Umsjón með kaupum og sölu fasteigna ásamt rekstri og viðhaldi þeirra
- Önnur tilfallandi verkefni tengd rekstri sjóðsins, umsýslu orlofseigna og þjónustu við sjóðfélaga
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
- Reynsla af fjármálum og rekstri
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Frumkvæði, metnaður og drifkraftur
- Reynsla af fasteignarekstri og umsýslu er kostur
- Góð skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt
- Færni í notkun samfélagsmiðla og textaritun
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - Vesturbyggð
Vesturbyggð

Verkefnastjóri Listasmiðju
Ævintýraborg ið Eggertsgötu

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Vegagerðin

Sérfræðingur / teymisstjóri – launakeyrslur
Fjársýslan

Verkefnastjóri fræðslumála
Oddi bs.

Deildarstjóri
Aldan

Framkvæmdastjóri Kuldabola
Torcargo ehf.

Deildarstjóri á yngsta stigi - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Framkvæmdastjóri fjármála hjá Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan

Framkvæmdastjóri
Síld og fiskur ehf - Ali

Verkefnastjóri á sviði þróunar- og framkvæmda
HS Orka

Rekstrar- og viðhaldsstjóri
Björgun-Sement