Fastus
Fastus

Sviðsstjóri heilbrigðissviðs

Fastus ehf. óskar eftir að ráða öflugan og reynslumikinn leiðtoga til að stýra heilbrigðissviði, sem er stærsta tekjusvið fyrirtækisins. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt stjórnunarstarf þar sem viðkomandi ber ábyrgð á rekstri, mannauðsmálum og stefnumótun sviðsins í nánu samstarfi við forstjóra sem er næsti yfirmaður. Leitað er að aðila með góða reynslu af sölustjórnun og er kostur ef viðkomandi þekkir svið heilbrigðislausna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á daglegum rekstri heilbrigðissviðs.
  • Skipulagning á sölustarfsemi og gerð söluáætlana.
  • Samræma sölu- og innkaupaáætlanir í samstarfi við fjármála- og rekstrarsvið.
  • Eftirfylgni með opinberum útboðum og samningum við opinbera aðila.
  • Ábyrgð á verðlagningu vöruflokka heilbrigðissviðs.
  • Ábyrgð á mannauðsmálum sviðsins, þar á meðal ráðningum, starfsþróun, þjálfun og daglegri leiðsögn starfsfólks.
  • Þróun þjónustu og ábyrgð á faglegum samskiptum við viðskiptavini.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri.
  • Háskólapróf s.s. á sviði viðskipta eða heilbrigðisvísinda
  • Reynsla af verkefnastjórnun og sölustjórnun
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Leiðtogahæfileikar og reynsla af stjórnun teyma.
  • Góð hæfni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Færni í notkun algengra tölvukerfa, gagnagrunna og rekstrar- og sölukerfa.
  • Greiningarhæfni, fagmennska og metnaður í starfi.

Fastus ehf. var stofnað 2006 og þjónustar heilbrigðis-, veitinga- og tæknigeirann með vönduðum tækjum, búnaði og rekstrarvörum frá leiðandi framleiðendum. Við leggjum áherslu á lausnir sem styðja við gæði og hagkvæmni í rekstri viðskiptavina. Okkar markmið er að vera fyrsti valkostur viðskiptavina okkar en slagorðið „við vinnum með þeim bestu“ endurspeglar þá sýn.
Við sækjumst eftir fólki með metnað, lausnamiðað hugarfar og löngun til að vaxa og þróast með öflugu teymi. Þekking og reynsla er dýrmæt en drifkraftur, jákvætt hugarfar og vilji til að ná árangri vega ekki síður. Verkefnin eru fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg og við trúum því að vinnan eigi að vera spennandi, lifandi og gefandi.

Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).

Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Viðskiptafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar