Viridi ehf.
Viridi ehf.

Viðskiptastjóri/framkvæmdastjóri SaaS lausna

Við leitum að drífandi og metnaðarfullum viðskiptastjóra/framkvæmdastjóra til að kynna og selja okkar lausnir til fyrirtækja með rekstrarlegan ávinning viðskiptavina að leiðarljósi.

Viðkomandi mun bera ábyrgð á að finna og þróa ný viðskiptatækifæri, byggja upp sterkt tengslanet og leiða söluferlið frá fyrstu snertingu til loka. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum og skilur þarfir viðskiptavina.

Þetta er ekki hefðbundið sölustarf - hér færð þú svigrúm til að prófa nýjar leiðir, hafa áhrif á stefnu og sýn félagsins til lengri tíma litið. Þú munt vinna náið með stjórnendum og fá innsýn í alla lykilþætti rekstrarins.

Starfið býður upp á veruleg tækifæri til vaxtar og áhrifa innan fyrirtækisins. Fyrir rétta aðila felst í hlutverkinu möguleiki á hraðri þróun í starfi og aukinni ábyrgð, með skýra framtíðarsýn um að geta vaxið inn í leiðtogahlutverk, þar á meðal framkvæmdastjórastöðu til lengri tíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Finna og þróa ný sölutækifæri á markaði.
  • Greina umhverfi fyrirtækja og meta mögulegan ávinning af lausnum fyrirtækisins.
  • Halda kynningar og sjá um innleiðingar.
  • Hafa umsjón með söluferli, tilboðs- og samningagerð.
  • Byggja upp og viðhalda langtímasamböndum með ávinning að leiðarljósi.
  • Nýta innsýn í markað og samkeppni til að styrkja stöðu fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. viðskiptafræði, verkfræði, tölvunarfræði eða tengdar greinar).

  • Viðbótarþekking eða reynsla á sviði tækni, gagna eða rekstrarráðgjafar er sterkur kostur.
  • Reynsla af ráðgjöf og sölu, helst SaaS eða tæknilausnum.

  • Skilningur á rekstrarumhverfi, gervigreind og áskorunum fyrirtækja.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og væntingastjórnun.

  • Drifkraftur, sjálfstæði og markmiðasetning.
Fríðindi í starfi
  • Samkeppnishæft starfsumhverfi.
  • Tækifæri til starfsþróunar í nýsköpunarumhverfi.
  • Fræðslu og stuðning til að ná árangri.
  • Starf í teymi með ávinning starfsmanna og viðskiptavina að leiðarljósi.
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur8. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Dynamics AXPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsgreiningPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Skilgreining markhópaPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.ViðskiptafræðingurPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar