
Forstöðumaður Viðskiptastýringar
Creditinfo leitar að metnaðarfullum og drífandi leiðtoga í stjórnendateymi félagsins til að leiða Viðskiptastýringu – lykilteymi sem mótar og þróar framúrskarandi sölu- og þjónustuframboð á fyrirtækjamarkaði.
Hjá Creditinfo færð þú tækifæri til að starfa hjá framsæknu fyrirtæki þar sem unnið er með lausnir sem skapa virði fyrir um 1.600 íslensk fyrirtæki. Creditinfo leggur áherslur á skilvirka ákvarðanatöku, nýsköpun, frumkvæði og hugrekki til að prófa nýjar leiðir.
Forstöðumaður Viðskiptastýringar ber ábyrgð á að greina og þróa ný viðskiptatækifæri, byggja upp og efla langtímasambönd við viðskiptavini og leiða sölu lausna Creditinfo. Teymi viðskiptastýringar er í lykilhlutverki þegar kemur að markaðssetningu félagsins og sýnileika þess á markaði.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á sölu og þjónustu, sem hefur sýnt fram á árangur í að byggja upp traust og varanleg viðskiptasambönd.
Ef þú ert farsæll leiðtogi, hugsar í lausnum og hefur drifkraft til að láta hlutina gerast er þetta tækifærið fyrir þig.
- Ábyrgð á leiðandi stöðu Creditinfo á fyrirtækjamarkaði.
- Ábyrgð á sókn félagsins, viðskiptastýringu, sölu og þjónustu við viðskiptavini félagsins.
- Byggja upp öflugt teymi, tryggja hvetjandi starfsumhverfi og leiða hóp starfsmanna í átt að krefjandi markmiðum.
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Framúrskarandi leiðtoga-, stjórnunar- og samskiptahæfileikar.
- Þekking og reynsla af viðskiptastýringu á fyrirtækjamarkaði.
- Reynsla af sölu, verðlagningu og samningagerð.
- Hæfni til að sjá viðskiptatækifæri í notkun gagna við ákvarðanatöku.
- Reynsla af sölu, verðlagningu og samningagerð.
- Áhugi á gagnadrifnum lausnum og viðskiptaumhverfi fyrirtækja.
- Reynsla af kynningum, mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg.
- Þekking á fjármála- eða tryggingastarfsemi er kostur.
Íslenska
Enska










