Kóraskóli
Kóraskóli
Kóraskóli

Sérkennari óskast í Kóraskóla

Kóraskóli óskar eftir áhugasömum sérkennara til að taka þátt í skólastarfi með okkur.

Kóraskóli tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru 280 nemendur í 8.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, verkefnamiðað nám, samþætt þemanám, teymiskennslu og samkennslu.

Starfið felst í því að vinna í teymi þar sem áherslan er lögð á þematengt, verkefnamiðað leiðsagnarnám. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf. Í námi og kennslu er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu og samþætt þemanám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna í árgangateymi og lausnarteymi skólans
  • Sér um gerð einstaklingsáætlana í samráði við umsjónarkennara, foreldra, nemendur og aðra eftir því sem við á
  • Annast ráðgjöf, upplýsingagjöf og upplýsingaöflun vegna sérþarfa nemenda sinna til foreldra og annarra hlutaðeigandi
  • Tekur þátt í kennara- og starfsmannafundum
  • Ber ábyrgð aðlögun námsefnis og metur árangur og endurskoðun markmiða í samstafi við samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum eða sambærileg menntun æskileg
  • Reynsla af starfi með nemendum með sérþarfir er kostur
  • Reynsla af einstaklingsmiðaðri nálgun í kennslu og þekking á fjölbreyttum kennsluháttum er kostur
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni, þolinmæði og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur9. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Vallakór 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar