

Starfsmaður óskast í hlutastarf hjá Rammastúdíó
Rammastúdíó við Ármúla 20 leitar að öflugum starfsmanni til að sinna hlutastarfi. Starfið felur meðal annars í sér almenna afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini, sölu, létt smíða- og verkstæðisverkefni tengd rammagerð, móttöku og frágang verkefna, tiltekt og umhirðu vinnusvæðis, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum í daglegum rekstri.
Starfið hentar einstaklingi sem hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum og er tilbúinn að taka þátt í því sem þarf að gera hverju sinni. Við leitum að einstaklingi sem:
- Er handlaginn og hefur gaman af verklegum verkefnum
- Er þjónustulundaður og á auðvelt með samskipti
- Sýnir frumkvæði og vinnur sjálfstætt
- Er samviskusamur, skipulagður og duglegur
Ekki er gerð krafa um sérstaka menntun eða reynslu. Núverandi framkvæmdastjóri sér um alla þjálfun og leiðsögn.
Starfið felur í sér vinnu hluta dags á laugardögum, afleysingar vegna fría og veikinda, sem og aðstoð á álagstímum þegar mikið er að gera. Um er að ræða hlutastarf sem hentar vel sem aukastarf með námi eða annarri vinnu.
Starfið er að jafnaði unnið á verktakagrundvelli nema umsækjandi óski eftir öðru fyrirkomulagi.
Boðið er upp á góð kjör fyrir réttan aðila. Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn og stutta kynningu á sjálfum sér ásamt upplýsingum um fyrri reynslu, ef við á.
Íslenska
Enska










