

Heilsuvernd óskar eftir að ráða starfsmann í móttökuteymi Heilsuverndar
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða. Markmið Heilsuverndar eru að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.
Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu og býr yfir sérstaklega góðum starfsanda, samvinnu og metnaði starfsfólks.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
Um fullt starf er að ræða en lægra starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Almennur vinnutími er frá 8:00 til 16:00 ásamt stökum síðdegisvöktum á milli kl. 16:00 og 17:00.
- Móttaka skjólstæðinga
- Upplýsingagjöf til skjólstæðinga
- Símsvörun og tímabókanir
- Innkallanir
- Móttaka greiðslna og dagsuppgjör
- Önnur tilfallandi verkefni í móttöku
- Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði í starfi
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Góð færni í ensku og/eða öðrum tungumálum æskileg
- Góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af Sögukerfi er æskileg
- Menntun eða reynsla af sambærilegu starfi æskileg
Enska
Íslenska










