
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili er stofnun í eigu Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar.
Á Höfða eru 73 íbúar í hjúkrunarrýmum , auk þess er tvö hvíldarými. Á heimilinu eru einstaklingsíbúðir, hjónaíbúðir og tvískiptar hjúkrunaríbúðir.
Í hinu sameiginlega rými hússins er m.a. eldhús, matsalur, samkomusalur, herbergi fyrir starfs- og sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, hárgreiðslu, fótsnyrtingu, þvottahús, endurhæfingarrými og skrifstofur. Þá er sérstakt rými fyrir dagdvöl þar sem eru 25 rými. Tvær lyftur eru í húsinu og neyðarkallkerfi úr öllum íbúðum og vistarverum. Ágætt útivistarsvæði er við Höfða; stór lóð með göngustígum og setbekkjum Útsýni frá Höfða er mjög fallegt hvert sem litið . Gott er að fara í gönguferðir á Sólmundarhöfða, niður á Langasand eða upp í skógræktarsvæði Akurnesinga. Fyrir utan dvalarheimlið stendur listaverkið „Grettistak“ eftir Magnús Tómasson.

Verkefnastjóri þjónustu og rekstrar
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði auglýsir tímabundið til eins árs, stöðu verkefnastjóra þjónustu og rekstrar, lausa til umsóknar. Verkefnastjóri þjónustu og rekstrar gegnir mikilvægu hlutverki í daglegri þjónustu, afgreiðslu og upplýsingagjöf Höfða. Starfið felur í sér móttöku gesta, skipulagningu viðburða, samskipti og þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra hagaðila, ásamt umsjón með ýmsum upplýsingamiðlum heimilisins.
Verkefnastjóri þjónustu og rekstrar hefur jafnframt yfirumsjón með rekstri ræstingu og þvottahúss og ber ábyrgð á ýmsum innkaupum rekstrarvara.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með almennri þjónustu við íbúa, skipulagningu viðburða og öðru tengt heimilishaldi.
- Ábyrgð á afgreiðslu og ýmsum samskiptum við hagaðila.
- Umsjón með innri og ytri upplýsingagjöf.
- Yfirumsjón með rekstri ræstingu og þvottahúss.
- Fjárhagsleg ábyrgð í samræmi við fjárhagsáætlun, aðstoð við gerð fjárhagsáætlunar og skýrslugerð þessu tengt.
- Þátttaka í innleiðingu nýjunga og þróun verkferla til að bæta þjónustu og skipulag innan heimilisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Háskólamenntun er kostur.
- Reynsla af mannaforráðum er kostur.
- Reynsla af innkaupamálum eða rekstri er kostur.
- Þekking eða reynsla af starfsemi hjúkrunarheimila eða heilbrigðisstofnana er kostur.
- Mjög góð tölvukunnátta er skilyrði, s.s. Word, Excel, Teams og Outlook.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar.
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur5. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sólmundarhöfði 5, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturMannleg samskiptiSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fulltrúi starfsánægju og skrifstofu
Wise lausnir ehf.

Þjónustufulltrúi
Gæðabakstur

Sérfæðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Hotel Receptionist – 201 Hotel (Day Shifts)
201 Hotel

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf - Only Icelandic speaking!
ATC

Innkaup og þjónusta
Rubix Ísland ehf

Fulltrúi í þjónustu við netverslanir
TVG-Zimsen

Þjónustufulltrúi
Atlantsolía

Verkefnastjóri
KÓRÍS, Kórasamband Íslands

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali

Aðstoðarmaður forstjóra
Intellecta