Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Hafnarvörður - Hafnarfjarðarhöfn

Hafnarfjarðarhöfn óskar eftir að ráða hafnarvörð til starfa. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hafnarfjarðarhöfn er með starfsemi bæði í Hafnarfirði og Straumsvík. Daglegur vinnutími er frá 07.30 - 15.30 virka daga, auk þess sem unnið er á kvöld- og helgarvöktum.

Helstu verkefni:

· Almenn störf við móttöku skipa og þjónustu við þau

· Vigtun á bílvog og pallvogum

· Aðstoð um borð í hafnsögu- og dráttarbátum

· Viðhald og umhirða á hafnarbökkum

· Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Reynsla af hafnarstörfum eða sjómennsku

· Námskeið frá Slysvarnarskóla sjómanna skilyrði*

· Vigtarréttindi skilyrði*

· Almenn ökuréttindi skilyrði og meirapróf (C) æskilegt

· Önnur menntun sem nýtist í starfi.

· Góð íslensku- og enskukunnátta

· Almenn góð tölvukunnátta

· Samskipta- og samstarfshæfni og þjónustulund

· Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.

Gerð er krafa um að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í síma 414-2300.

Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2026.

*Ef viðkomandi hefur ekki lokið námskeiði hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða hefur ekki vigtarréttindi, en uppfyllir að öðru leyti allar kröfur starfsins, er hægt að senda hann á námskeið áður en hann hefur störf

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins

Auglýsing birt12. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Óseyrarbraut 4, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar