Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli

Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 100% starf.

Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, í vetur eru nemendur tæplega 200.

Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Í Engidalsskóla er starfrækt frístundaheimili fyrir 6 - 9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10 - 12 ára börn. Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.

Starfið felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur á skólatíma og stýra hópum í frístundastarfi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stuðningur við börn í skólastarfi
  • Starfa á frístundaheimili fyrir yngri nemendur
  • Stýra hópi í frístundastarfi
  • Starfa með fjölbreyttum nemendahópi
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Fylgjast með og aðstoða börn í leik og starfi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu skóla- og frístundaliða og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð íslenskukunnátta, hæfni C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Geta til að vinna undir álagi

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, [email protected] og í síma 5554433 og Arnheiður Guðmundsdóttir, deildarstjóri frístundastarfs, [email protected] og í síma 5554434.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember 2026.

Ráðið er í starfið frá og með 1. janúar 2027

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar