
Lágafellsskóli
Lágafellsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10.bekk. Nemendafjöldi er um 580.
Unnið er í anda uppbyggingarstefnunnar þar sem meigináhersla er lögð á að byggja upp sjálfstraust og sjálfsstjórn nemenda ásamt því að leiðbeina nemandanum til að verða sá sem hann vill verða.
Að kennslu lokinni gefst nemendum 1.-4. bekkjar kostur á lengdri viðveru í Frístund sem starfrækt er innan skólans. Frístund Lágafellsskóla er mjög vel sótt og eru þar um 160 nemendur við leik og skipulagða klúbbastarfsemi daglega.
Lágafellsskóli stendur við Lækjarhlíð 1 Mosfellsbæ. Bólið, félagsmiðstöð nemenda í 5.-10.bekk stendur á lóð skólans.
Skólinn samanstendur af öflugu starfsfólki sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum. Fjöldi starfsmanna er um 100.

Frístundaleiðbeinandi í Lágafellsskóla
Ertu að leita af skemmtilegu starfi þar sem engin dagur er eins ?
Við leitum að öflugu og skemmtilegum frístundaleiðbeinendum í Frístundastarf Lágafellsskóla. VIð bjóðum upp á lifandi og fjölbreytt starf með börnum í 1.-4.bekk að loknum skóladegi. Þar gefst tækifæri til að taka þátt í skemmtilegu klúbbastarfi, skemmtilegum valsmiðjum, skapandi verkefnum og fjölbreyttum viðfangsefnum þar sem hugmyndaflug og gleði fá að njóta sín. VIð leitum að jákvæðum og áhugasömum einstaklingum sem hafa gaman af því að vinna með börnum, sýna frumkvæði og vilja stuðla að góðum samskiptum, vináttu og jákvæðri upplifun barna í faglegu frístundstarfi.
Um hlutastarf er að ræða og er vinnutíminn 13:10- 16:00/16:30 á virkum dögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur fyrir starfsemina hverju sinni og tiltekt að henni lokinni
- Leiðbeina og tryggja þátttöku barnanna í starfi með styrk þeirra að leiðarljósi
- Ýta undir leik, sköpun og lýðheilsu
- Vinna gegn andfélagslegri hegðun og skapa öruggt umhverfi
- Leysa úr ágreiningum, leiðbeina samræðum barna, ýta undir vinsemd og styðja börnin í að eiga við tilfinningar sínar
- Skapa lýðræðislegt umhverfi þar sem börnin eiga kost á því að tjá sig og hafa áhrif á starfsemina
- Sinna fjölbreyttum hlutverkum eftir þörfum og hæfni
- Stýra smiðjum,klúbbum, sjá um valstöðvar, fylgja eftir viðveru og mætingu barna
- Önnur hlutverk sem styðja við og/eða bæta gæði starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Samskipta- og samvinnuhæfni
- Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
- Sveigjanleiki og hjálpsemi
- Þolinmæði og umhyggjusemi
- Hæfni til þess að lesa í aðstæður
- Tæknilæsi eða vilji til þess að nýta tækni í starfi
- Hreint sakarvottorð
- Góð íslenskukunnátta
- Lágmarksaldur 18 ára (eða að verða 18 ára á árinu)
Fríðindi í starfi
- Rækt og Lágafellsslaug er við hliðinn á Lágafellsskóla. Afsláttur í World class og frítt í sund fyrir starfsmenn.
- Samgöngustyrkur
Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur4. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðHugmyndaauðgiJákvæðniMannleg samskiptiTeymisvinna
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár.
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Skóla- og frístundaliði - frístundaheimilið Álfakot Engidalsskóla
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Barnaborg í Þingeyjarsveit leitar að leikskólakennara
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Kópahvoll óskar eftir kennurum vegna stækkunar
Kópahvoll

Skemmtileg hlutastörf í frístundaheimilum í Grafarholti og Grafarvogi
Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari - Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur

Frístundaleiðbeinandi - frístundaheimilið Krakkakot
Frístundaheimilið Krakkakot