Frístundaheimilið Krakkakot
Frístundaheimilið Krakkakot

Frístundaleiðbeinandi - frístundaheimilið Krakkakot

Frístundaheimilið Krakkakot við Hvassaleitisskóla óskar eftir frístundaleiðbeinanda og stuðningsfulltrúa í 30-50% starf eftir hádegi. Skemmtilegt og lifandi starf með börnum í 1. - 4. bekk. Viðkomandi þarf að geta unnið á mánudögum og þriðjudögum og geta hafið störf sem fyrst.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið uppá fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega.

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Hafdís Oddgeirsdóttir, Forstöðukona

Tölvupóstur [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn í 1. - 4. bekk.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu
Menntunar- og hæfniskröfur

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt16. október 2026
Umsóknarfrestur30. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Stóragerði 11A, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar