Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Launafulltrúi

Hrafnista óskar eftir að ráða launafulltrúa til starfa á launadeild Hrafnistu. Launafulltrúi ber ábyrgð á launavinnslu á einu hjúkrunarheimili Hrafnistu. Starfið felur meðal annars í sér útreikning og vinnslu launa á grundvelli tímaskráningarkerfis, auk þess að veita stjórnendum og starfsfólki upplýsingar og ráðgjöf um áunnin réttindi og stöðu þeirra.


Í launadeild starfa fimm launafulltrúar ásamt teymisstjóra. Deildin er hluti af fjármálasviði, einu af stoðsviðum Hrafnistu. Hún vinnur í nánu samstarfi við önnur stoðsvið, einkum mannauðssvið.


Um er að ræða tímabundið starf til eins árs. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Auður Böðvarsdóttir, mannauðsráðgjafi á Hrafnistu ([email protected]).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Launavinnsla og frágangur launa
  • Skráningar í launa- og tímaskráningarkerfi
  • Upplýsingagjöf og samskipti við starfsfólk og stjórnendur vegna launa
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um grunnháskólamenntun eða góða starfsreynslu á viðkomandi sviði
  • Góð Excel kunnátta
  • Talnagleggni
  • Skipulagsfærni
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og metnaður í starfi
Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar