
Sérfræðingur í þjónustu og sjálfvirknivæðingu
Creditinfo leitar að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem brennur fyrir framúrskarandi þjónustu og hefur áhuga á og hæfni til að sjálfvirknivæða þjónustuferla fyrirtækisins. Starfið sameinar þjónustu við viðskiptavini og leiðandi hlutverk í að þróa, einfalda og sjálfvirknivæða þjónustuferla. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi fær tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á hvernig við þjónustum viðskiptavini okkar til framtíðar.
Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina og annarra sem hafa samband við Creditinfo
Skráningarvinnsla og umsýsla gagna með áherslu á gæði og nákvæmni
Greining á þjónustuferlum og tækifærum til umbóta, einföldunar og sjálfvirknivæðingar
Leiða innleiðingu lausna sem byggja á gervigreind (AI) og annarri tækni í þjónustu
Eftirfylgni með mælikvörðum og árangri þjónustu og ferla
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Rík þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni
Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði í að finna betri leiðir
Áhugi á og þekking á gervigreind, sjálfvirknivæðingu og stafrænum lausnum
Reynsla af ferlavinnu, straumlínustjórnun (lean) eða umbótaverkefnum er kostur
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
Íslenska
Enska










