Advania
Advania
Advania

Söluráðgjafi í notendalausnum

Advania leitar að reynslumiklum söluráðgjafa í notendalausnum sem hefur brennandi áhuga á tækni og hvernig hún skapar virði fyrir fyrirtæki.

Í hlutverkinu vinnur þú með fjölbreyttum viðskiptavinum og hjálpar þeim að velja búnað og lausnir sem styðja starfsfólk þeirra og rekstur, allt frá fartölvum og skjám til fjarfundabúnaðar, heyrnartóla og annarra notendalausna. Þú byggir upp sterk viðskiptasambönd, finnur ný tækifæri og vinnur náið með sérfræðingum, vörustjórum og birgjum að því að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem sameinar sterka viðskiptahugsun, ráðgefandi nálgun og áhuga á tækni.

Helstu verkefni

  • Ráðgjöf og sala á notendabúnaði og tengdum lausnum til fyrirtækja

  • Umsjón með lykilviðskiptavinum og markviss þróun viðskiptasambanda

  • Greining þarfa viðskiptavina og framsetning á lausnum sem skapa raunverulegt virði

  • Uppbygging nýrra viðskipta og leit að nýjum tækifærum á markaði

  • Tilboðsgerð, verðsamningar og eftirfylgni verkefna frá upphafi til enda

  • Kynningar og fundir með viðskiptavinum, samstarfsaðilum og birgjum

  • Samstarf við vörustjóra, tækniráðgjafa og innkaupateymi

  • Þátttaka í útboðum, stærri verkefnum og stefnumótandi viðskiptum

  • Halda sér upplýstum um nýjungar, markaðsþróun og tæknilausnir

Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur reynslu af sölu á tæknilausnum eða öðrum flóknum B2B lausnum

  • Hefur góða þekkingu á tölvum, skjám, fylgihlutum, fjarfundabúnaði og öðrum notendalausnum

  • Er öflug(ur) í samskiptum og nýtur þess að byggja upp langtímasambönd

  • Hefur metnað til að ná árangri og þróa eigin viðskiptatækifæri

  • Er sjálfstæð(ur), skipulögð(ur) og lausnamiðuð(ur)

  • Hefur góða samningahæfni og viðskiptalega hugsun

  • Hefur gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Af hverju Advania?

Þú færð svigrúm til að hafa áhrif, vinna með sterkasta sérfræðingahópi landsins á sínu sviði og byggja upp langtímasambönd við lykilviðskiptavini. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, mikla ábyrgð og tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi þróun lausna og þjónustu Advania.

Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur30. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar