Ljósleiðarinn
Ljósleiðarinn
Ljósleiðarinn

Viðskiptastjóri

Viltu hafa áhrif á vöxt Ljósleiðarans?

Ljósleiðarinn rekur ljósleiðarainnviði um allt land sem fjarskiptafélög, fyrirtæki og stofnanir treysta á. Eftirspurn eftir öruggum og öflugum tengingum vex hratt, ekki síst hjá gagnaverum og öðrum innviðafyrirtækjum.

Við leitum að reyndum viðskiptastjóra sem vill ná árangri og eiga þátt í áframhaldandi vexti Ljósleiðarans. Þú sækir ný viðskipti, byggir upp traust viðskiptasambönd og mótar lausnir með okkur á spennandi markaði.

Þú verður hluti af teymi Sölu og viðskiptaþróunar og hefur raunveruleg áhrif á árangur Ljósleiðarans á ört vaxandi markaði.

Helstu verkefni

  • Sækja ný viðskipti á innviðamarkaði, meðal annars hjá gagnaverum, orkufyrirtækjum og stærri fyrirtækjum með sérþarfir í tengingum.
  • Viðhalda og efla langtímasambönd við viðskiptavini.
  • Greina þarfir viðskiptavina og markaðarins og taka þátt í þróun lausna í samstarfi þvert á fyrirtækið.
  • Tilboðsgerð, samningaviðræður og eftirfylgni.

Hæfniskröfur

  • Að minnsta kosti fimm ára reynsla af sölu eða viðskiptastýringu á fyrirtækjamarkaði.
  • Reynsla af tilboðs- og samningagerð.
  • Góður tæknilegur skilningur og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraftur.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og gott vald á íslensku og ensku.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

Það er kostur ef þú hefur

  • Reynslu úr fjarskipta-, gagnavera- eða orkugeiranum.
  • Þekkingu á ljósleiðaratækni eða netinnviðum.
  • Gott tengslanet á fyrirtækja- og/eða innviðamarkaði.
  • Reynslu af útboðum og tilboðsgerð.
Auglýsing birt13. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar