Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérhæfður starfsmaður í ræstingum

Við óskum eftir að ráða jákvæðan og þjónustulipran einstakling með ríka samskipta- og samstarfshæfni til starfa á skurðstofum Landspítala við Hringbraut. Starfið er fjölbreytt og felst meðal annars í ræstingum á skurðstofum og skurðstofugangi, þrifum á svæfingarvélum og öðrum búnaði, áfyllingum og öðrum tilfallandi verkefnum. Starfað er í teymi og því er mikilvægt að umsækjendur búi yfir góðri samstarfshæfni, sveigjanleika og skipulögðum vinnubrögðum. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu og að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri.

Starfið er vaktavinna og unnið er á morgunvöktum (08-17 og 12-20), kvöldvöktum (15-23) og næturvöktum (20-08). Einnig er unnið aðra hverja helgi á tvískiptum 12 tíma vöktum, auk bakvakta. Ráðið er í starfið frá 1. nóvember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.

Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Þar starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum.

Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi og sérhæft starfsfólk gegnir veigamiklu hlutverki í að tryggja góða þjónustu við sjúklinga. Starfsemi fer fram á skurðstofum 12cd, skurðstofum 23a og á útstöðvum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Jákvæðni og lipurð í samskiptum
Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
Hæfni til að vinna í teymi
Rík þjónustulund og sveigjanleiki
Sjálfstæð og skipulögð í vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta er áskilin
Stundvísi og áreiðanleiki
Helstu verkefni og ábyrgð
Ræsting á skurðstofum og skurðstofugangi
Þrif á svæfingarvélum og búnaði
Áfyllingar á svæfingarborð
Pöntun og frágangur á líni
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
Auglýsing birt28. september 2026
Umsóknarfrestur8. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (24)
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali