Taktur endurhæfing Parkinsonsamtakanna
Taktur endurhæfing Parkinsonsamtakanna
Taktur endurhæfing Parkinsonsamtakanna

Sjúkraþjálfari óskast í endurhæfingarteymi Takts í Lífsgæðasetri St. Jó

Við leitum að sjúkraþjálfara í fjölbreytt starf í þverfaglegu endurhæfingarteymi Takts. Starfið felur í sér hreyfifærnimat, einstaklings- og hópþjálfun, fræðslu og eftirfylgd. Sjúkraþjálfari ber ábyrgð á faglegum starfi sjúkraþjálfunar og tekur þátt í áframhaldandi þróun þjónustunnar.

Hjá Takti er unnið að því að viðhalda og efla færni, virkni og lífsgæði fólks með Parkinson og skylda sjúkdóma. Þjónustan er ætluð fólki sem er á fyrri stigum sjúkdómsins og hópurinn er fjölbreyttur að aldri, líkamlegu formi og færni. Þjálfunin tekur mið af þörfum og markmiðum hvers og eins.

Við bjóðum gott vinnuumhverfi, mjög góða vinnuaðstöðu og góðan tækjabúnað til mats og þjálfunar. Lögð er áhersla á nána teymisvinnu, miðlun þekkingar og frumkvæði.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Umsækjendur sem hafa áhuga á hlutastarfi eru einnig hvattir til að sækja um, en til greina kemur að ráða tvo sjúkraþjálfara í lægra starfshlutfall.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hreyfifærnimat með áherslu á göngu, jafnvægi, styrk, úthald og fallhættu.

  • Gerð endurhæfingaráætlana og markmiðasetning í samvinnu við þjónustuþega og endurhæfingarteymi.

  • Skipulagning og framkvæmd einstaklings- og hópþjálfunar sem tekur mið af þörfum og getu hvers og eins.

  • Reglulegt endurmat og eftirfylgd með færni og árangri þjálfunar.

  • Náið samstarf við íþróttafræðinga og aðstoðarmenn við skipulagningu og framkvæmd þjálfunar, ásamt faglegri leiðsögn.

  • Fræðsla og ráðgjöf til þjónustuþega og aðstandenda um hreyfingu, forvarnir, byltuvarnir og virkni í daglegu lífi.

  • Ábyrgð á faglegum gæðum sjúkraþjálfunar.

  • Skráning í sjúkraskrá og árangursmælingar.

  • Virk þátttaka í teymisvinnu, teymisfundum og miðlun fagþekkingar.

  • Þátttaka í áframhaldandi þróun endurhæfingar hjá Takti.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í sjúkraþjálfun og íslenskt starfsleyfi frá Embætti landlæknis.

  • Áhugi á taugasjúkraþjálfun og endurhæfingu fólks með Parkinson og skylda sjúkdóma.

  • Reynsla af þjálfun fólks með taugasjúkdóma kostur.

  • Áhugi og hæfni til að vinna í þverfaglegu teymi og miðla fagþekkingu.

  • Frumkvæði og metnaður í starfi.

  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð skipulagshæfni.

  • Góð samskiptahæfni, sveigjanleiki og jákvætt viðmót.

  • Góð íslenskukunnátta.

Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á:

  • Gott vinnuumhverfi í samhentu þverfaglegu teymi.

  • Mjög góð vinnuaðstaða og góður tækjabúnaður til mats og þjálfunar.

  • Tækifæri til að móta og þróa þjónustu Takts og nýta eigin fagþekkingu og frumkvæði.

  • Styttingu vinnuvikunnar.
  • Niðurgreiddan hádegismat.

Auglýsing birt11. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar