
Heilsugæslan Kirkjusandi
Grunnheilbrigðisþjónustu er sinnt á Heilsugæslunni Kirkjusandi. Boðið er upp á lækna- og hjúkrunarmóttöku, heilsueflandi móttöku, ung- og smábarnavernd, mæðravernd, sálfræðiþjónustu, blóðrannsókn og aðrar rannsóknir.
Sjá heimasíðu.

Sjúkraþjálfari í heilsueflandi móttöku
Heilsugæslan á Kirkjusandi auglýsir eftir sjúkraþjálfara í 10% starf hreyfistjóra í frábæru teymi heilsueflandi móttöku.
Heilsugæslan er einkarekin stöð sem býður upp á góðan starfsanda og góða starfsaðstöðu, en stöðin flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði í 105 Reykjavík, árið 2022.
Í boði er starf á líflegum og ört vaxandi vinnustað þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu við okkar skjólstæðinga ásamt góðri samvinnu milli starfsstétta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf hreyfistjóra felst í gerð og eftirfylgd hreyfiáætlunar einstaklinga, eftir ávísun á hreyfiseðil. Þetta er unnið í þverfaglegu samstarfi í heilsueflandi móttöku heilsugæslunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi í sjúkraþjálfun
- Þekking eða reynsla af notkun hreyfiseðla er kostur
- Reynsla af sjúkraþjálfun
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð íslenskukunnátta
- Framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Færni í þverfaglegu samstarfi
- Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt17. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaHreint sakavottorðMannleg samskiptiSamskipti í símaSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



