Hjúkrunarnemar á 3.- 4. ári - hlutastörf með námi á heila-, tauga- og öldrunarbæklunarskurðdeild
Við óskum eftir að ráða 3.-4. árs hjúkrunarnema í hlutastörf með skóla. Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Hjúkrunarnemar fá markvissan stuðning samhliða starfi á deildinni. Um vaktavinnu er að ræða og ráðið er í störfin sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Á B6 starfar um 60 manna samheldinn hópur fagfólks. Hjá okkur ríkir einstaklega góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Áhersla er lögð á framþróun og símenntun starfsfólks og er öllum nýliðum veitt góð einstaklingshæfð aðlögun.
Deildin þjónustar sjúklinga eftir aðgerð eða áverka á heila, mænu og taugum. Hágæslueining fyrir heila- og taugaskurðsjúklinga er einnig starfsrækt innan deildarinnar. Auk þess þjónustar deildin einstaklinga 67 ára og eldri sem hljóta mjaðmabrot. Unnið er eftir hugmyndafræði um flýtibata og mikil áhersla er á teymisvinnu og þverfaglegt samstarf.