

Almennt starf í flutningaþjónustu
Aðfangaþjónusta auglýsir eftir öflugum einstaklingum í vaktavinnu við flutningaþjónustu Landspítala. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Starfsstöð er við Hringbraut.
Leitað er að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika.
Flutningaþjónusta veitir afar mikilvæga þjónustu innan veggja Landspítala við deildir, sjúklinga og gesti. Má þá helst nefna flutninga á sjúklingum og sýnum eftir beiðnum og fasta flutninga á vörum, lyfjum, líni, pósti og sorpi. Starfsfólk flutningaþjónustu heyrir undir teymisstjóra sem er ábyrgur fyrir því að starfsemin gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum. Markmið flutningaþjónustu er að veita framúrskarandi þjónustu við deildir spítalans og létta þannig undir með klínískri starfsemi. Starfið er bæði fjölbreytt og gefandi, þar sem lögð er áhersla á gott samstarf innan teymisins sem og við starfsfólk annarra deilda.
Flutningaþjónusta er hluti af aðfangaþjónustu Landspítala sem tilheyrir Rekstrar- og mannauðssviði.






























































