

Sumarstörf 2025 - Nemi í talmeinafræði
Laust er til umsóknar sumarstarf fyrir nema í talmeinafræði sumarið 2025. Starfsstöð er endurhæfingardeildin á Grensási. Æskilegt er að geta hafið störf um miðjan maí 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út og með umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir lokin námskeið með ECTS einingum. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
- Verkefni og ábyrgð eru í samráði við yfirtalmeinafræðing og talmeinafræðinga á starfsstöð
- Greining, meðferð og ráðgjöf vegna tal- og máltruflana
- Greining, meðferð og ráðgjöf vegna kyngingartregðu
- Þverfagleg teymisvinna
- Sérhæfð verkefni sem heyra undir fagsvið talmeinafræði
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Góð íslenskukunnátta
- Lágmarksaldur umsækjanda eri 18 ár


















































