Aðstoðardeildarstjóri klínískrar lyfjaþjónustu á Landspítala
Lyfjaþjónusta Landspítala auglýsir eftir metnaðarfullum klínískum lyfjafræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra klínískrar lyfjaþjónustu.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu í störfum í almennri lyfjaþjónustu, stjórnun, rekstri, ásamt gæða- og umbótastarfi og vera tilbúinn til að taka þátt í umbreytingu sem fram undan er í starfseminni.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra/forstöðumanni og tekur virkan þátt í stjórnun, þróun á skipulagi, aukinni þjónustu, mannauðsmálum, ásamt innleiðingu nýjunga er stuðla að auknum gæðum, starfsánægju og öryggi sjúklinga.
Leitað er eftir einstaklingi með framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni, stjórnunarreynslu, hæfni til að móta jákvætt starfsumhverfi og byggja upp sterka liðsheild. Viðkomandi þarf að búa yfir frumkvæði, eldmóði og hafa áhuga á að starfa með stjórnendum og starfsfólki við að stuðla að framþróun og umbótum í þjónustu sem styður við starfsemi Landspítala.
Lyfjaþjónusta heyrir undir svið Klínískrar rannsókna- og stoðþjónustu á Landspítala og ber m.a. ábyrgð á öflun og varðveislu lyfja, lyfjablöndun, lyfjaskömmtun, hefur eftirlit með notkun lyfja á spítalanum og veitir ráðgjöf um lyfjatengd mál til starfsfólks og sjúklinga, ásamt því að taka á móti fjölda nema á hverju ári.
Hjá lyfjaþjónustu Landspítala starfa um 100 einstaklingar í samhentri deild og fást þar við fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi lyfjafræðings
Meistarapróf í klínískri lyfjafræði
Reynsla af því að starfa sem klínískur lyfjafræðingur á heilbrigðisstofnun ásamt kennslu lyfjafræðinga í sérnámi og lyfjafræðinema í grunnnámi er kostur
Stjórnunarreynsla og reynsla af rekstri, mannaforráðum, stefnumótun, teymisvinnu og breytingastjórnun í heilbrigðisþjónustu er kostur
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð nálgun
Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
Fagleg vinnubrögð, afburða skipulagshæfni og reynsla af gerð greininga á árangursvísum, rekstri og starfsemistölum
Þekking og reynsla af lyfjageiranum og löggjöf varðandi lyfjamál á Íslandi er kostur
Þekking á þjónustuþáttum Landspítala er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggja, stjórna, deila út verkefnum og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, mönnun og rekstri einingar innan lyfjaþjónustu í samráði við næsta yfirmann
Vera faglegur leiðtogi og bera ábyrgð á verkefnum sem yfirmaður felur
Styðja vaktstjóra og samstjórnendur í daglegum störfum
Stuðla að jákvæðum starfsanda, starfsumhverfi og samskiptum við stjórnendur, starfsfólk og skjólstæðinga
Vera leiðandi í umbóta-, öryggis- og gæðastarfi sem stuðlar að öryggi sjúklinga, bættri þjónustu og framþróun
Greining á ferlum og gögnum og vinna að umbótatækifærum í samvinnu við stjórnendateymi, gæðastjóra, kennslustjóra og aðra hagaðila
Er staðgengill næsta yfirmanns eða samstjórnenda eftir þörfum
Virk þátttaka í stjórnendateymi lyfjaþjónustu og klínísks rannsóknar- og stoðþjónustusviðs í verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauðsmálum