Pósturinn
Pósturinn
Pósturinn

Patreksfjörður - Sumarstarfsmaður á pósthúsi

Pósturinn leitar að starfsmanni í hin ýmsu verkefni á pósthúsinu á Patreksfirði.

Um er að ræða útkeyrslu pósts, afgreiðslu viðskiptavina, útburð bréfa og almenna póstvinnslu. Vinnutíminn er 08:00-16:05 og vinnutímabilið er 1. júní - 15. ágúst.

Afgreiðsla á pósthúsi

Starfið felur m.a. í sér þjónustu við viðskiptavini, almenna afgreiðslu, frágang á pósti og önnur tilfallandi verkefni.

Póstvinnsla

Í starfinu felst flokkun á pósti fyrir útburð og önnur tilfallandi verkefni.

Útkeyrsla

Starfið felur í sér að koma sendingum til skila til viðskiptavina og önnur tilfallandi verkefni. Viðkomandi þarf að hafa bílpróf.

Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2025.

Nánari upplýsingar um störfin veita Sigurborg Þórsdóttir, rekstrarstjóri, [email protected].

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Auglýsing birt19. mars 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bjarkargata 4, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar