Almennt starf í flutningaþjónustu
Landspítali auglýsir laus til umsóknar störf í flutningaþjónustu á Landspítala, bæði í dag- og vaktavinnu. Leitað er eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika.
Flutningaþjónusta veitir afar mikilvæga þjónusta innan veggja Landspítala við deildir, sjúklinga og gesti. Má þá helst nefna flutninga á sjúklingum, rúmum og sýnum eftir beiðnum og fasta flutninga á vörum, lyfjum, líni, pósti og sorpi. Starfsfólk flutningaþjónustu heyrir undir teymisstjóra sem er ábyrgur fyrir því að starfsemin gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum.
Markmið flutningaþjónustu er að veita framúrskarandi þjónustu við deildir spítalans og létta þannig undir með klínískri starfsemi. Starfið er fjölbreytt og gefandi og verður viðkomandi í miklu samstarfi við annað starfsfólk teymisins sem og starfsfólk deilda. Starfsstöðvar flutningaþjónustu eru á Hringbraut og í Fossvogi en unnið er ýmist á vöktum eða í dagvinnu.
Flutningaþjónusta er hluti af aðfangaþjónustu Landspítala sem tilheyrir rekstrar- og mannauðssviði.
Um er að ræða fullt starf og æskielgt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.